Kynferðisofbeldi er mein sem við viljum uppræta
22. júlí, 2016
�?ví miður hefur nauðgun átt sér stað á �?jóðhátíð í Eyjum. �?ví miður hefur nauðgun átt sér stað á öðrum tímum ársins í Eyjum. �?ví miður eru líkur á því að nauðgun mun eiga sér stað á �?jóðhátíð í Eyjum. �?ví miður eru líkur á að nauðgun eigi sér stað á öðrum tímum ársins í Eyjum. �?etta er staðreynd og yfir henni hvílir engin þöggun. Mesta þöggunin í þeirri umræðu sem á sér stað í dag er að nauðganir hafa átt sér stað á fleiri stöðum en á �?jóðhátíð í Eyjum og mun eiga sér stað á fleiri stöðum en í Vestmannaeyjum. Fjöldi tilkynntra kynferðisafbrota á síðustu �?jóðhátíð voru of margar en færri en gengur og gerist í hverri viku á höfuðborgarsvæðinu. �?etta er ljótur blettur á �?jóðhátíð sem okkur Eyjamönnum líður illa yfir.
Eyjamenn viðhafa ekki þöggun umræðu um kynferðisofbeldi á �?jóðhátíð eins og sumir vilja halda fram. Viðbragðsáætlun �?jóðhátíðarnefndar, lögreglunnar í Eyjum, Heilbrigðisstofnunar, áfallateymis og fleiri aðila bera öll merki um það. Allir búa sig undir að bregðast við þessari ljótu vá. Allir vona það besta en búa sig undir það versta. Gæslan er elfd, heilbrigðisþjónusta tryggð, rekinn er öflugur áróður gegn nauðgunum, fólk er hvatt til að vera á varðbergi og fylgjast með hvort öðru og vernda. Ef upp kemur tilvik um kynferðisofbeldi er brugðist við. Á öðrum tíma ársins er öflugt starfsfólk félagsþjónustu, lögreglu, heilsugæslu og fleiri til taks er upp koma slík brot. Engum dettur til hugar að fela þennan ljóta blett sem fellur á samfélagið heldur eru menn tilbúnir til að takast á við hann og helst af öllu útrýma.
�?g hef starfað innan félagsþjónustu Vestmannaeyjabæjar í 24 ár, fyrst sem sálfræðingur og á síðustu árum sem framkvæmdastjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs. �?g hef starfað í áfallateymi á �?jóðhátíð og verið gestur �?jóðhátíðar á síðustu 23 hátíðum. Að auki hef ég starfað sem lögregluþjónn í Reykjavík. Á þessum árum hef ég kynnst reynslu þolenda nauðgunarmála frá upphafi þess að mál kemur fram, því ferli sem tekur við, úrvinnslu og afleiðingum. �?au eru þung og erfið sporin hjá þolanda frá fyrstu stigum áfalls.
Páleyju Borgþórsdóttir þekki ég vel. Hún hefur komið að nokkrum málum sem lögmaður þolenda kynferðisafbrota og lagt sig fram af elju og hugsjón við að gæta hagsmuna sinna umbjóðenda. Ásetningur hennar var einlægur þegar kom að því að vernda umbjóðendur. Sem lögreglustjóri heldur hún áfram að gæta hagsmuna þolenda og vernda rannsóknarhagsmuni. Hún tekur ákvörðun í þá átt að vernda þolendur kynferðisafbrota á þjóðhátíð frá fjölmiðlum á fyrstu stigum máls. Auðvitað eru fréttaþyrstir fjölmiðlar ósáttir og hamra á Páley með öllum þeim ráðum sem þeir þekkja.
Dregin er upp dökk mynd af ákvörðun Páleyjar og áróður rekinn fyrir því að hér sé verið að þagga niður tengingu nauðgunar og �?jóðhátíðar. Jafnvel hafa sumir gengið enn lengra og dregið upp þá mynd að samfélagið í Eyjum þaggi niður kynferðisofbeldi. �?að eru óskiljanleg rök í mínum huga sérstaklega út frá því að enginn í Eyjum hefur afneitað þeirri vondu staðreynd að kynferðisofbeldi getur og hefur átt sér stað á �?jóðhátíð og á öðrum tíma ársins eins og kemur fram í upphafi þessarar greinar minnar.
Fréttaþyrstir fjölmiðlar leggja ekki vinnu í það að draga úr þöggun. �?eir þrengja umræðuna um nauðgun og kynferðislegt ofbeldi með því að benda og hrópa að einum atburði (�?jóðhátíð), einum landshluta (Vestmannaeyjum) og einum aðila (lögreglustjóra). Við það er allri athygli um nauðgun beint á einn stað og frá þeirri staðreyndin að kynferðisofbeldi á sér stað víðar á Íslandi. Fyrir mér er þetta þöggun.
Fróðlegt væri fyrir fjölmiðla að draga saman upplýsingar um fjölda nauðgana á Íslandi, hvar þær fari helst fram og undir hvaða kringumstæðum. Líklega kallar það á meiri vinnu og er ekki eins söluvæn umræða. �?etta kallar á vinnu við að fara yfir gögn eins og frá neyðarmóttöku Landsspítalans, Ríkislögreglustjóra og Stígamótum. Málin eru orðin að tölfræði og ekki eins djúsí til að selja. Árið 2014 var fjöldi kynferðisbrota 419 og að meðaltali 13 brot á landsvísu miðað við 10.000 íbúa. Í Eyjum var hlutfallið 12, á höfuðborgarsvæðinu var hlutfallið 11, á Vesturlandi 19, á Suðurnesjum 17 og á Vestfjörðum 36. Skilgreining á kynferðisbrotum eru víðari en eingöngu nauðgun. (upplýsingar af heimasíðu Ríkislögreglustjóra)
Á höfuðborgarsvæðinu var fjöldi tilkynntra kynferðisbrota árið 2014 alls 238 (tæplega 57% af heild) og þar af 71 tilkynningar um nauðgun. �?að gerir rúmlega ein nauðgun á viku. Árið áður sem var met ár frá því samræmdar skráningar lögreglu fór fram var fjöldi kynferðisbrotamála 416 og þar af 114 tilkynningar um nauðgun sem gerir rúmlega tvær nauðganir að meðaltali á viku. (upplýsingar af heimasíðu Ríkislögreglustjóra)
Auðvitað er þessi tölfræði leiðinleg og ekki söluvæn. Hún er bara tölur á pappír og fjallar ekkert um alvarleika máls, hver er þolandi eða gerandi eða annað sem svalar forvitni okkar. Tölfræðin er svo leiðinleg að hún er ekki einu sinni brúklega til að fá athygli, fjármagn eða viðurkenningu á þeirri vondu staðreynd að nauðganir eiga sér stað á fleiri stöðum en í Eyjum. Fyrir fjölmiðla dugar ekki að fá tölu um fjölda tilkynntra nauðgana aðfaranótt sunnudags á �?jóðhátíð. Menn vilja fá meira til að selja sína frétt. Hvar átti brotið sér stað? Hvernig ætlar �?jóðhátíðarnefnd að bregðast við? Er búið að ná geranda? Er ekki kominn tími til að leggja �?jóðhátíð niður? Er samfélagið í Eyjum að þagga niður umræðu um kynferðisofbeldi?
Umræða um nauðganir og annað kynferðisofbeldi er nauðsynleg. Í starfi mínu sem sálfræðingur uppgötvaði ég fljótt að mun fleiri höfðu reynslu af slíku ofbeldi en höfðu ekki tilkynnt. �?eir verða því ekki að tölfræði. �?essar upplýsingar fengu mig til að til að velta fyrir mér hversu margir Íslendingar hafa þessa reynslu? Hversu margir hafa komið drukknir af skemmtistað, verið misnotaðir og ekki treyst sér til að leita aðstoðar? Á höfuðborgarsvæðinu er hverja helgi haldin ígildi �?jóðhátíðar a.m.k hvað varðar fjölda einstaklinga, skemmtanaþörf og neyslu vímuefna. Áhætta nauðgunartilfella er fyrir hendi. Engin eða lítil umræða er um þessa áhættu. Enginn fjölmiðill hangir á hurðahúninum hjá lögreglunni í Reykjavík til að fá upplýsingar um fjölda nauðgunartilfella eftir skemmtanahaldið um helgar. �?ær upplýsingar liggja ekki fyrir í dagbók lögreglunnar. �?ær koma vissulega fram sem tölfræði síðar, á sama hátt og tölfræði er birt af hálfu lögreglunnar í Vestmannaeyjum reglubundið. �?annig voru t.d. 23 tilkynningar um kynferðisbrot í Reykjavík í júní sl. hjá lögreglunni í Reykjavík samkvæmt upplýsingum sem birtar voru á vef R�?V þann 18. júlí sl. sem er allnokkuð eftir að brotin áttu sér stað. (upplýsingar af vef R�?V; http://www.ruv.is/frett/kynferdisbrotum-fjolgadi-mikid-i-juni)
Skemmtanahaldi öllu, þ.m.t. �?jóðhátíð getur fylgt áhætta og mikilvægt að allir gæti að sér, passi upp á náungann og samferðafólk og leggi sig fram um að hátíðin fari fram á sem besta hátt. Engin nauðgun á �?jóðhátíð er það sem við viljum. Engin nauðgun í Eyjum er það sem við viljum. Staðreyndum verður ekki þagað yfir. Í mínum huga fer lítið fyrir þöggun um þessa áhættu í Eyjum. �?öggunin er aftur á móti meiri hvað varðar aðra staði. �?öggunin er algjör varðandi fjölda tilfella nauðgana á Íslandi, hvar fara þær helst fram og undir hvaða kringumstæðum. �?öggun yfir raunverulegri stöðu nauðgana og kynferðisbrota á Íslandi birtist einna helst í þröngri og einhæfðri umfjöllun um �?jóðhátíð í Eyjum.
Dettum ekki inn í óupplýsta umræðu, pólitískar þrætur eða populisma varðandi þessi mál. Einbeitum okkur að því að berjast gegn ofbeldinu og það gerist best í sameiningu og af gagnkvæmri virðingu því ekkert okkar vill hafa þetta mein.
Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida EF 7 Tbl 2025
7. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.