Lúkas tekinn á þjóðhátíð - umræðunauðgun
Einu sinni var hundur sem týndist. Nokkrir á samfélagsmiðlum sögðu hundinn hafa mætt hræðilegum örlögum dýraníðings. Fjölmiðlar tóku þátt og sögðu frá kertafleytingum og mótmælum vegna hundsins. ,,Umræðan” tók meintan dýraníðing fyrir og tætti af honum mannorðið. Nokkru síðar kom Lúkas af fjalli ómeiddur.
Síðustu daga hafa samfélagsmiðlar og fjölmiðlar tekið lúkas á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Aðalfréttatími R�?V í gærkvöldi var með þjóðhátíðarlúkasinn sem fyrstu frétt. Vitnað var í yfirlýsingu fimm hljómsveita sem vitnaði í ,,umræðuna”, sem R�?V, aðrir fjölmiðlar og samfélagsmiðlar standa fyrir, þar sem krafan sé að bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum hengi út fyrsta fórnarlamb nauðgunar á þjóðhátíð til áminningar um nauðsyn ,,umræðunnar”.
,,Umræðan” telur að bæjaryfirvöld eigi að stilla fórnarlambi kynferðisofbeldis á opinberan stall til að réttlæta umræðu um nauðgun. Mannúðleg málsmeðferð réttarríkisins er algert aukaatriði: ,,umræðan” þarf sitt fórnarlamb.
Ef ,,umræðan” fær sínu fram verður særð, smánuð sál, sem vogar sér að kæra nauðgun, sett til sýnis á opinberum vettvangi strax eftir að glæpurinn er kærður. �?ökk sé ,,umræðunni” fær misþyrmda manneskjan ekkert svigrúm til að komast heim í öruggt skjól, heldur verður hún að þola opinbera umræðunauðgun í lóðbeinu framhaldi af líkamlegri nauðgun.
�?jóðhátíðarlúkasinn verður til í andrúmslofti netvæddrar múgsefjunar. Er ekki mál að linni?
Tekið af bloggsíðu Páls Vilhjálmssonar.

Nýjustu fréttir

Þoka hér en ekki þar
Þakkir frá Krabbavörn Vestmannaeyja
Deloitte tekur við endurskoðun Vestmannaeyjabæjar
Prjónuðu 83 húfur gegn einelti
Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.