Árni Johnsen gefur kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
�?oli ekki að sjá tæki­færi Suður­kjör­dæm­is fara for­görðum
�??�?að er búið að fara illa með þig, Árni,�?? sagði einn af elstu og reynd­ustu menn­ing­ar­frömuðum Suður­lands við mig fyr­ir skömmu. �??Hvað áttu við�?? spurði ég. �??�?ér var vikið til hliðar í stjórn­mál­um að ástæðulausu.�??
�?ví miður er þetta dap­ur­leg staðreynd, því það er ekk­ert grín að vera sparkaður niður á seinni hluta ævi­starfs­ins. Ef ég hefði tapað á eðli­leg­an hátt í síðasta próf­kjöri Sjálf­stæðis­flokks­ins fyr­ir þrem­ur árum hefði ég ekki tekið því illa, því eðli lífs­ins er tap og sigr­ar. �?á hefði ég þakkað fyr­ir mig með von um að ég hefði gert gagn.
Staðreynd­in er hins veg­ar sú að þrír meðfram­bjóðend­ur mín­ir, sem all­ir lentu í þrem­ur efstu sæt­um próf­kjörs­ins unnu skipu­lega að því að fæla fólk frá því að kjósa mig. �?annig rottuðu þau sig sam­an, Ragn­heiður Elín, Unn­ur Brá og Ásmund­ur, og höfðu er­indi sem erfiði en þessi vinnu­brögð þeirra eru hins veg­ar eins­dæmi í sögu próf­kosn­inga Sjálf­stæðis­flokks­ins. Meg­in­mark­miðið í próf­kjöri er að al­menn­ir kjós­end­ur velji á lista en ekki fram­bjóðend­urn­ir sjálf­ir. �?essi vinnu­brögð eru ekki ólög­leg en þau eru al­gjör­lega siðlaus og ódrengi­leg á versta máta.
Að loknu próf­kjör­inu kallaði odd­vit­inn fimm efstu í próf­kjör­inu til fund­ar og byrjaði fund­inn svo smekk­lega að lýsa því yfir að nú væru spenn­andi tím­ar framund­an í Suður­kjör­dæmi �??því við erum laus við Árna Johnsen og nú er ým­is­legt hægt að gera�??. Blessuð kon­an vissi ekki og veit ekki að ég var með af­kasta­mestu þing­mönn­um bæði í flutn­ingi mála og því að ná mál­um í heila höfn, hvað svo sem um mig má segja.
Hafa ekk­ert gert í þrjú ár
En hvað hef­ur þetta blessað fólk gert síðastliðin þrjú ár í skjóli rík­is­stjórn­ar­meiri­hluta? Ekki neitt, hrein­lega ekki neitt sem hef­ur komið Suður­kjör­dæmi til góða. �?au hafa lagt fram þrjú mál, ráðherr­ann mál um staðgöngu­mæðrun, sem lík­lega verður aldrei hægt að samþykkja vegna þess að það er ekki hægt að tryggja rétt barns­ins, mál um nátt­úrpassa sem all­ir vita hvernig fór og þing­manna­mál um sölu áfeng­is í búðum, dap­ur­legt mál. �?etta er allt og sumt, en tríóið leyfði sér að bregða fyr­ir mig fæti og fella mig á hlaupa­braut­inni með 40 mál í fartesk­inu, stór og smá varðandi Suður­kjör­dæmi og landið allt, meðal ann­ars mál upp á einn millj­arð króna upp­gjör rík­is­ins við Reykja­nes­bæ vegna Helgu­vík­ur­hafn­ar, mál sem ég var bú­inn að vinna með í þrjú ár og fá samþykkt með til­lögu­upp­áskrift í sam­göngu­nefnd með meiri­hluta þing­manna Alþing­is en Vinstri græn­ir (lýðræðis­elsk­andi flokk­ur­inn) náðu að stöðva það í nefnd með rík­is­stjórn­ar­valdi þannig að það fór ekki til at­kvæðagreiðslu í þing­inu. �?ing­menn sjálf­stæðis­flokks­ins höfðu ekki einu sinni rænu á að fylgja þessu eft­ir við síðustu stjórn­ar­mynd­un sem þau áttu sjálf aðild að.
�?g er ekki taps­ár, maður lær­ir slíkt við eðli­leg­ar aðstæður í íþrótt­un­um, ég er ekki að leita að samúð, hent­ar mér ekki, en kannski svo­lítið af sann­girni og rétt­læti. �?g þarf að vinna, vil vinna og get unnið. �?g kann vel til verka á vett­vangi stjórn­mál­anna, er hug­sjónamaður og þoli ekki að sjá tæki­fær­in fara for­görðum vegna sinnu­leys­is og klúðurs fólks sem hef­ur að því er virðist ein­göngu áhuga á sam­kvæm­is­leikj­um. Að standa vakt fyr­ir lands­byggðar­kjör­dæmi er þrot­laus vinna og það vinnst ekk­ert með enda­lausri söfn­un sjálfs­mynda á net­miðlana. �?að áþreif­an­lega ræður úr­slit­um, ár­ang­ur. �?g sakna fólks­ins í Suður­kjör­dæmi, sakna þess að vera ekki með hvers­dags í starfi og leik, leggja á ráðin, leysa úr mál­um.
Mörg spenn­andi stór­mál
Fyr­ir utan fjölda mála sem ég hef unnið að en lentu í þagn­ar­gildi eru mörg stór­mál sem væri spenn­andi að vinna að. Staða efna­hags­mála er stærsta málið og geng­ur vel und­ir for­ystu Bjarna Bene­dikts­son­ar fjár­málaráðherra, brýnt er að fylgja eft­ir öfl­ugri styrk­ingu heil­brigðis­kerf­is­ins. Styrkja þarf mark­visst vega­kerfi lands­ins og aðrar sam­göng­ur og ekki síst sam­göng­ur við Vest­manna­eyj­ar þar sem þarf að hefja nú þegar und­ir­bún­ing jarðganga­gerðar sam­kvæmt ein­róma skýrslu sem hef­ur verið í vinnslu sér­fræðinga, því það er al­veg ljóst að sú ferja sem hef­ur verið lofað að smíða mun ekki leysa sam­göngu­mál við Vest­manna­eyj­ar á árs­grund­velli, a.m.k. 500 þúsund manna ferðaleið. �?á þarf að tryggja sjúkra­flug milli lands og Eyja með staðsetn­ingu vél­ar í Eyj­um. Spenn­andi er að berj­ast fyr­ir stór­átaki í verk­mennt­un ungs fólks og eldri. �?ar liggja mik­il sókn­ar­færi. Brýnt er að tryggja skatt­fríðindi sjó­manna vegna vinnu fjarri heim­ili, en sjó­menn eru eina stétt­in í land­inu sem ekki nýt­ur slíkra fríðinda. Hækka lægstu laun. Tryggja ný­sköp­un um allt land. Setja þarf bönk­un­um stól­inn fyr­ir dyrn­ar varðandi ei­líft aukið plokk af viðskipta­vin­um og græðgi um­fram allt eðli­legt. Stöðva þarf okur sveit­ar­fé­laga á lóðum und­ir ný hús. Hvaða glóra er í því að lóðir sveit­ar­fé­laga utan höfuðborg­ar­inn­ar kosta plús mín­us tvær millj­ón­ir en á höfuðborg­ar­svæðinu 15 millj­ón­ir plús mín­us. Slíkt er hreinn stuld­ur. �?að er margt sem bíður úr­lausn­ar.
�?g gef kost á mér
�?g hef ákveðið að gefa kost á mér í kom­andi próf­kjöri Sjálf­stæðis­flokks­ins á Suður­landi fyr­ir kom­andi alþing­is­kosn­ing­ar. �?g er rétt liðlega sjö­tug­ur, nán­ast tán­ing­ur miðað við ald­ur í alþjóðastjórn mál­um og hef reynslu, vilja og metnað til þess að ná ár­angri með hug­sjóna­eldi. Ef fólkið í Suður­kjör­dæmi vill að ég vinni fyr­ir það eins og ég hef gert um langt ára­bil, þá þarf að stefna á eitt­hvert efstu sæt­anna, svo­kallað ör­uggt sæti, en við eðli­leg­ar aðstæður gætu það verið þrjú þing­sæti.
�?g hvet Suður­kjör­dæm­inga til þess að taka þátt í próf­kjör­inu, það á að skipta máli.

Árni Johnsen

Nýjustu fréttir

Eyþór leiðir eftir fyrstu tölur
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Gleðilegan kjördag
Spennandi prófkjör Sjálfstæðismanna í Eyjum
Pílan: Deildarkeppni lokið – Útsláttur hefst
Fasteignaumfjöllunin – útsýni á heimsmælikvarða
Fyrir þig en ekki sjálfa sig
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.