�?jóðhátíðarnefnd - �?jóðhátíðin í ár meðal þeirra stærstu
�??�?jóðhátíðin í Eyjum 2016 tókst vel að mati �?jóðhátíðarnefndar og veðurguðirnir léku við hátíðargesti. Einmuna blíða var alla dagana og muna elstu menn ekki eftir jafn góðu veðri á �?jóðhátíð. �?etta er ein af stærstu þjóðhátíðum sem haldnar hafa verið í Eyjum en 142 ár eru síðan fyrsta hátíðin var haldin,�?? segir í frétt sem þjóðhátíðarnefnd ÍBV-íþróttafélags hefur sent frá sér.
�??�?að var ekki bara gestum af fastalandinu sem fjölgaði í ár heldur bættust hátt í 30 hústjöld í tjaldborg heimamanna frá því í fyrra. Framkvæmd hátíðarinnar tókst vel og voru gestir hátíðarinnar nær allir til mikillar fyrirmyndar. Aldurssamsetning gesta var ákjósanleg því nú var meira en oft áður um að fjölskyldur kæmu saman á hátíðina og að unglingar og ungmenni skemmtu sér í fylgd foreldra eða forráðamanna. Eitthvað var um slys og tognanir sem gert var að í sjúkraskýli í Herjólfsdal en alvarlegri málum sem upp komu var vísað til lögreglu.
�?jóðhátíðanefnd hefur lagt sérstaka áherslu á forvarnir gegn öllu ofbeldi og að þessu sinni voru um 100 manns við öryggisgæslu í Herjólfsdal þegar flest var auk læknis og hjúkrunarfræðinga. �?á var starfandi áfallateymi í dalnum sem stýrt var af fagmenntuðu starfsfólki. Til að undirstrika áherslu á öryggismálin var athöfn á föstudagskvöld þar sem gestir, hljómsveitir og starfsfólk hátíðarinnar sýndu með táknrænum hætti að ofbeldi á �?jóðhátíð er ekki liðið.
�?rátt fyrir þann almenna og mikla samhug sem ríkti gegn hvers kyns ofbeldi á hátíðinni er �?jóðhátíðarnefnd kunnugt um að í gær höfðu 11 líkamsárásir og ein nauðgun verið kærð til lögreglu. �?essi fjöldi kærumála veldur vonbrigðum og er 12 málum of mikið. Í kjölfar hátíðarinnar verður sérstökum starfshópi falið að fara yfir framkvæmdina og gera tillögur um hvernig efla megi enn frekar öryggi á �?jóðhátíð og stuðla að hugarfarsbreytingu gagnvart kynferðisofbeldi og öðru ofbeldi.
Auk þeirra fjölmörgu tónlistarmanna sem fram komu á hátíðinni og um 100 öryggisvarða lögðu hátt í 200 sjálfboðaliðar �?jóðhátíðarnefd lið við framkvæmd hátíðarinnar. �?jóðhátíðarnefnd þakkar öllu þessu góða fólki fyrir vel unnin störf á �?jóðhátíð. Hreinsun Herjólfsdals gekk vel og var henni að mestu lokið á mánudagskvöld,�?? segir í tilkynningunni.

Nýjustu fréttir

Eyþór Harðarson efstur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Gleðilegan kjördag
Spennandi prófkjör Sjálfstæðismanna í Eyjum
Pílan: Deildarkeppni lokið – Útsláttur hefst
Fasteignaumfjöllunin – útsýni á heimsmælikvarða
Fyrir þig en ekki sjálfa sig
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.