Meistaraflokkur karla tapaði á móti Fylki í kvöld
Bjarni Jó­hanns­son, þjálf­ari ÍBV, var brúnaþung­ur eft­ir 2:1-tap hans mann gegn Fylki í Pepsi-deild karla í knatt­spyrnu í kvöld. ÍBV er eft­ir leik­inn í 10. sæti með 17 stig en Fylk­ir er sæti neðar með 13 stig. mbl.is greindi frá
�??�?etta var mjög svekkj­andi. Við mætt­um ekki al­veg nógu vel inn í leik­inn. Eft­ir markið brugðumst við ágæt­lega við og það var synd að við vor­um ekki bún­ir að jafna fyr­ir hlé. Við héld­um áfram og náðum að jafna og svo ger­um við ein mis­tök sem kostuðu okk­ar þetta mark,�?? sagði Bjarni eft­ir leik­inn í kvöld.
Al­bert Brynj­ar Inga­son kom Fylki yfir í fyrri hálfleik en Elv­ar Ingi Vign­is­son jafnaði met­in í upp­hafi seinni hálfleiks. Al­bert tryggði Fylki sig­ur rúm­um tíu mín­út­um fyr­ir leiks­lok eft­ir varn­ar­mis­tök heima­manna.
�??Við eydd­um miklu púðri í að jafna leik­inn en svo fannst mér þetta 50/�??50 þar til þeir gera annað markið,�?? sagði Bjarni.
Hann tel­ur ekki að bikartapið gegn Val hafi setið í hans mönn­um. �??�?að virkaði ekki þannig en maður veit það aldrei. Byrj­un­in var þung­lama­leg en tókst að vinna okk­ur ágæt­lega inn í leik­inn.�??
�?jálf­ar­inn veit að ÍBV er komið í harða fall­bar­áttu. �??Við erum að sog­ast all­veru­lega í þessa bar­áttu og vit­um vel af því. �?ess vegna var slæmt að tapa hér í dag.�??

Nýjustu fréttir

Sveiflur í veðri og ógnar brim
Gul viðvörun – Austanhríð
Kristín Klara lék í sigri Íslands á Serbíu
Þar sem andinn er góður og stemningin í klefanum frábær
Bílaumboðið Una selur XPENG bíla á Íslandi 
Árni Árnason – Þurrabúðarlíf í Eyjum um aldamótin 1900
34,8 milljónir í fjárhagsaðstoð í fyrra
Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.