�??Á aðalfundi Vinnslustöðvarinnar hf. í Vestmannaeyjum þann 6. júlí sl. voru undirritaðir kosnir í stjórn og varastjórn félagsins. �?egar talningu var lokið líkaði meirihluta hluthafa félagsins ekki niðurstaða kosninganna. Arnar Sigurmundsson fundarstjóri, sem er stjórnarmaður í Landssamtökum lífeyrissjóða og tengist hópi meirihluta hluthafa Vinnslustöðvarinnar sem Haraldur Gíslason fer fyrir, ákvað í samráði við þessa örfáu hluthafa að kosning til stjórnar væri ógild og kosið skyldi aftur,�?? segir í fréttatilkynningu sem bræðurnir Guðmundur Kristjánsson í Brimi og Hjálmar Kristjánsson sendu frá sér eftir hluthafafund Vinnslustöðvarinnar þar sem ný stjórn var sjálfkjörin.
Einnig segir í fréttatilkynningunni: �??�?essum vinnubrögðum var mótmælt tafarlaust á aðalfundinum. �?rátt fyrir mótmæli og bókanir fundarmanna ákvað fundarstjóri að kjósa aftur. Sú stjórn sem var kosin hefur ekki tekið til starfa. Málið er nú hjá hlutafélagaskrá RSK sem hefur ekki enn kveðið upp úrskurð sinn. Við höfum rétt fram sáttarhönd til meirihlutans, svo friður gæti skapast um félagið, en því hefur verið hafnað.
�?rátt fyrir allt þetta hefur verið boðað til nýs hluthafafundar í Vinnslustöðinni hf. síðar í dag þar sem á að kjósa þriðju stjórnina á þessu ári. Við teljum þetta vera ólöglega og grófa valdníðslu af hálfu meirihluta hluthafa og gróft brot á reglum hlutafélagalaga. �?ykir okkur einnig miður að sjá Lífeyrissjóð Vestmannaeyja, sem lengst af var hlutlaus um málefni Vinnslustöðvarinnar, taka þátt í aðför meirihlutans að okkur, ásamt stjórnarmanni í Landssamtökum lífeyrissjóða. Vakna þá spurningar um hvort lítið sé að marka baráttu lífeyrissjóðanna fyrir bættum stjórnarháttum í hlutafélögum.
Við tilkynnum hér með að við höfum ákveðið að draga framboð okkar til stjórnarsetu í Vinnslustöðinni hf. til baka þar sem við teljum boðaðan hluthafafund sem fara á fram í dag ólöglegan,�?? segir í fréttatilkynningunni sem þeir Guðmundur og Hjálmar sendu frá sér eftir fundinn.
Á myndinni er Sigurður Ágústson, lögmaður Brims að lesa upp yfirlýsingu bræðranna.