Hver telur þú framtíð kvótakerfisins vera?
�?essi spurning var send öllum alþingismönnum Suðurkjördæmis fyrir nokkru síðan í tilefni þess að nýtt kvótaár er gegnið í garð. Aðeins tveir sáu sér fært að svara okkur, Páll Valur Björnsson hjá Bjartri framtíð var annar þeirra.
Rekum hugsanlega einn sjálfbærasta, hagkvæmasta og arðbærasta sjávarútveg í heimi
�?egar að stórt er spurt er stundum fátt um svör. Blessað kvótakerfið hefur verið okkur Íslendingum sífellt þrætuepli nánast frá því að það var sett á fyrir margt löngu. �?g tel að það eigi áfram að nota kvótakerfi við að stjórna fiskveiðum því að ég trúi að það sé hagkvæmasta aðferðin til að halda heildarafla innan skynsamlegra marka sem og kostnaði við að sækja aflann niðri. Eins tel ég það stuðla að bestri aflameðferð og gæðum og þar með verðmætasköpun og arði af fiskveiðum og fiskvinnslu.
Hins vegar þarf að tryggja öruggari og meiri hlutdeild fólksins í landinu í arðinum en nú er og alveg sérstaklega fólks sem starfar í sjávarútvegi, s.s. við veiðar og vinnslu og samfélaga sem hafa verið og eru mjög háð sjávarútvegi um afkomu sína. �?að þarf að gera með gagngerri endurskoðun núverandi veiðigjaldakerfis eða uppboði á aflaheimildum með skilyrðum sem tryggja m.a. nægilegan varanleika og rekstraröryggi hjá þeim sem gera út og stunda fiskvinnslu og koma í veg fyrir of mikla samþjöppun og tryggja raunverulega og virka samkeppni um aflaheimildir. �?g tel að rétt sé til að byrja með að nota báðar aðferðir, þ.e. veiðigjöld og uppboð, þ.e. úthluta hluta fiskveiðikvóta með þeim aðferðum sem nú er gert en með endurskoðuðum veiðigjöldum og úthluta hluta kvótans á grundvelli uppboða. Eins og t.d. þegar aflamark er aukið verulega frá fyrri fiskveiðiárum og í nýjum tegundum. �?annig megi líka meta kosti og galla þessara aðferða og sníða af þeim annmarka áður en varanlegu kerfi verður komið á.
Hvað sem okkur kann að finnast um kvótakerfið þá má aldrei líta framhjá þeirri staðreynd að við Íslendingar rekum hugsanlega einn sjálfbærasta, hagkvæmasta og arðbærasta sjávarútveg í heimi í dag. En hver framtíð kvótakerfisins verður getur enginn svarað nema tíminn en ég vona að niðurstaðan hver sem hún verður muni vera þjóðinni allri og þeim sem sækja aflann og vinna hann til hagsbóta og farsældar.