Kona fannst nakin utandyra með alvarlega áverka á laugardaginn
Kona á fimmtugsaldri var flutt í skyndi með sjúkraflugi frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur á laugardagsmorgun. Samkvæmt heimildum Stundarinnar, sem greindi frá þessari frétt, fannst konan meðvitundarlaus í húsgarði rétt hjá öldurhúsi í bæjarfélaginu. Konan er sögð hafa fundist nakin og með mikla áverka, meðal annars á höfði. Töldu heimildarmenn Stundarinnar að konan hafi höfuðkúpubrotnað.
Lögreglan í Vestmannaeyjum verst allra fregna af málinu. Einu upplýsingarnar sem fengust frá embættinu voru þær að lögreglan væri að rannsaka mál sem hafi komið upp um helgina. Hvort um væri að ræða þjófnað, líkamsárás, íkveikju eða kynferðisbrot sagðist yfirlögregluþjónn embættisins ekki geta tjáð sig um það.
�??�?etta er mjög óhugnarlegt mál og fólki hér er brugðið,�?? segir íbúi í Vestmannaeyjum sem Stundin ræddi við. Mikið af fólki hafi verið samankomið á eyjunni um helgina til þess að skemmta sér, bæði íbúar og aðkomufólk. Rætt sé um þetta alvarlega atvik nú eftir helgina en að litlar upplýsingar sé að fá um hvað hafi í raun og veru gerst.
Stundin hafði samband við starfsmann neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis á Landspítalanum sem staðfesti að einn einstaklingur hafi leitað til þeirra um helgina. �?á hefur einnig verið staðfest að flogið var slaðasan einstakling frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur þennan laugardag, 17. október.
Eins og áður segir veitir lögreglan í Vestmannaeyjum engar upplýsingar um málið. �?að er í takt við stefnu embættisins undir forystu lögreglustjórans Páleyjar Borgþórsdóttur.
Uppfært 18:30
Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri í Vestmannaeyjum, staðfesti nú undir kvöld frétt Stundarinnar í samtali við DV. Hún segir að grunur leikur á að konan sem fannst nakin utandyra hafi verið beitt kynferðisofbeldi aðfaranótt laugardags. �?á hafi lögreglan handtekið mann á heimili sínu sömu nótt sem hún grunar að hafi veitt konunni áverkana. Farið var fram á gæsluvarhald yfir manninum en þeirri beiðni var hafnað af héraðsdómi. Sá úrskurður var kærður til hæstaréttar og er niðurstöðu að vænta á morgun.
�?á segir Páley að rannsókn málsins sé á viðkvæmu stigi en ekki hefur tekist að ljúka skýrslutöku fórnarlambsins nema að hluta til.

Nýjustu fréttir

Íslendingur vann tæpar 65 milljónir í EuroJackpot
Hafsbotnsmælingar vegna Eyjaganga hefjast í næstu viku
Baldur snýr aftur í Breiðafjörð þegar Herjólfur verður kominn í lag
Kristrún ánægð með heimsókn til Vestmannaeyja
H verslun með pop up verslun í Eyjum
Hafna ósk Terra um styttri opnunartíma
Mugison, saft í brúsa og pönsur á Skansinum
Grjóthrun við Friðarhöfn

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.