Á sunnudaginn næsta, 24. nóvember nk. verður einstæður viðburður í Landakirkju þegar kristnir söfnuðir í Vestmannaeyjum sameinast í messu í Landakirkju.
Á undan verða tónleikar með landsþekktu listafólki. Það tekur einnig þátt í messunni ásamt kórum safnaðanna. Á eftir verður samkomugestum boðið í hátíðarkaffi í Safnaðarheimilinu.
Dagskráin hefst stundvíslega kl. 13:00 með tónleikum þar sem fram koma söngvararnir Gissur Páll, Hera Björk og gítarleikarinn Björn Thoroddsen.
Að loknum tónleikum hefst sameiginleg messa kristinna safnaða í Vestmannaeyjum. Hún byrjar með því að Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri flytur ávarp. Í messunni þjóna Guðmundur Örn Jónsson og Viðar Stefánsson, prestar Landakirkju, Guðni Hjálmarsson, prestur Hvítasunnukirkjunnar og Sr. Denis O´Leary, prestur Kaþólsku kirkjunnar. Mikill söngur verður í messunni þar sem Gissur Páll, Hera Björk og Björn koma fram og Kór Landakirkju og Lofgjörðarsveit Hvítasunnukirkjunnar.
Um er að ræða lokaviðburð í tilefni af 100 ára afmæli kaupstaðarréttinda Vestmannaeyjabæjar. Að lokinni dagskrá um kl. 14:30 býður bærinn samkomugestum til kaffisamsætis í Safnaðarheimili Landakirkju, segir í tilkynningu frá 100 ára afmælisnefnd kaupstaðarréttinda Vestmannaeyjabæjar.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst