Staða Vestmannaeyja sögulega sterk
2. janúar, 2017
Eins og öll ár skiptist á með skin og skúrum hjá mér persónulega á árinu 2016. Kaflar voru jafnvel erfiðir en einhvern veginn færir lífið okkur ætíð nægilega birtu til að eyða öllum skuggum. �?egar frá líður skapa svo erfiðu stundirnar tækifæri til þroska og lærdóms. Samfélagið getur verið grimmt og jafnvel vel gert fólk getur gleymdi þeirri gullnu reglu að aðgát skal höfð í nærveru sálar. �?etta á ekki síður við um Vestmannaeyjar en önnur samfélög. Hvað sem öllu því líður þá er ekki sjálfgefið að fá að taka á móti nýju ári umvafinn ástvinum. Að líta yfir árið og njóta þeirrar gæfu að börnin manns, vinir og fjölskylda skuli halda lífi og heilsu eru forréttindi sem ekki öllum eru gefin. Heilt yfir var því árið 2016 mér og mínum gott.
Atvinnulífið styrktist
Vestmannaeyjar héldu á árinu áfram að styrkjast og dafna. Gríðalegar framkvæmdir í atvinnulífinu settu svip sinn á bæjarlífið. Ekki eingöngu eru framkvæmdir sem þessar jákvæðar fyrir atvinnulífið á líðandi stundu heldur styrkja þær okkur og veita brautargengi inn í komandi tíð. Í kjölfarið á þeim verða stóru stöðvarnar í Vestmannaeyjum með landvinnslu á borð við það sem best gerist í heiminum. Fyrir okkur sem hér búum skiptir ekki minna máli að fjárfestingar sem þessar auka langtímaöryggi hvað breytingar í sjávarútvegi varðar. Landbundin verðmæti eins og hús sigla jú ekki í burtu eins og bátar og kvóti getur gert. �?á er einnig afar ánægjulegt að sjá lítil og meðalstór fyrirtæki til að mynda í fiskvinnslu, iðnaði og þjónustu dafna og sterka stjórnendur sækja fram.
Störfum í sjávarútvegi er að fækka
Ekki verður hjá því horft að breyting er að verða á hvað varðar fjölda starfsmanna í sjávarútvegi. Aukin sjálfvirkni og tæknivæðing hverskonar fækkar störfum. Ekki hvað síst verðum við vör við að störfum fyrir sjómenn fækkar verulega ár eftir ár. Tekjur sveitarfélgsins af sjávarútvegi lækka þar með enda launaskattur (útsvar) langmikilvægasti tekjustofn okkar sameiginelga sjóðs. Við þessari stöðu þarf að bregðast. �?ar sem fyrr gildir að sveltur sitjandi kráka en fljúgandi fær.
Ferðaþjónusta dafnar
Ferðaþjónusta í Vestmannaeyjum hefur vaxið ævintýralega á seinustu árum og það þrátt fyrir erfiðleika í samgöngum. Nú er svo komið að í fyrsta skipti eigum við Eyjamenn raunhæfa möguleika til að byggja upp stoð til hliðar við sjávarútveginn og mæta þannig þeim veruleika sem fólginn er í fækkandi störfum til sjávar. Lykilatriðið til að svo geti orðið er að höggið verði á samgönguhnútinn og sótt fram með bótum á öllu því sem tengist Landeyjahöfn og er þar allt undir. �?ótt ný ferja sé algerlega nauðsynleg þá er hún ein ekki nægjanleg til að tryggja öruggar samgöngur allt árið um Landeyjahöfn. �?að þarf einnig að gera breytingar á höfninni.
Blikur á lofti
Hvorki þarf að ferðast oft til Reykjavíkur né dvelja þar lengi til að sjá að þenslan þar er mikil og einkaneyslan vaxandi. �?ll vitum við að slíku ástandi fylgir oft að samkeppnin um fólk og tækifæri. Hafi sagan kennt okkur eitthvað þá er það að landsbyggðin gefur eftir þegar höfuðborgarsvæðið vex. �?essi veruleiki ásamt sterkri krónu og færri störfum í sjávarútvegi leggur verkefni á borð okkar Eyjamanna.
�?jónustan mikið aukin
Á nýliðnu ári hefur þjónusta Vestmannaeyjabæjar aukist mikið. Leikskólaplássum var fjölgað verulega, teknar upp heimagreiðslur og foreldrum þannig gert mögulegt að vera lengur heima hjá börnum sínum, niðurgreiðsla til dagmæðra var aukin þannig að hún næði niður í 9 mánaða, frístundakort hafa verið tekin upp og margt fleira. �?á hefur aðstaða til tómstundar fyrir eldri borgara verið aukin verulega, dagþjónusta fatlaðara tók stakkaskiptum með nýrri hæfingarstöð, byrjað var á nýrri deild við Hraunbúðir fyrir fólk með heilasjúkdóma svo sem Alzheimer, aðstaða til dagvistar á Hraunbúðum var öll endurnýjuð og lengi má áfram telja. �?essir þjónustuþættir bætast við þá sem fyrir eru svo sem niðurfelling á fasteignagjöldum fyrir eldri borgara, gjaldfrjálst aðgengi barna að sundlaug, myndalegt menningarstarf og svo margt fl.
Mikið framundan
Áfram skal haldið á þeirri vegferð að byggja upp fyrirmyndar samfélag í Vestmannaeyjum. Nú þegar er byrjað að vinna að hönnun á nýjum þjónustuíbúðum fyrir aldraða, stefnt er að byggingu á allt að 6 íbúðum fyrir fatlaða, verið er að ljúka endurgerð á sýningarsal á Kviku og stefnt er að því að bjóða þar upp á kvikmyndasýningar, hafin er innleiðing á nýjum úrvinnsluleiðum sorps og margt fleira er í burðarliðunum. Við ætlum okkur að bjóða bæjarbúum upp eins mikla og góða þjónustu og mögulegt er.
Fylgt úr hlaði
Staða Vestmannaeyja er sögulega sterk. Í áratug hefur allt kapp verið lagt á að greiða upp vaxtaberandi lán og skuldbindingar auk þess sem mikil áhersla hefur verið lögð á að bæta hagkvæmni í rekstri. Samhliða þessu hefur þjónusta við bæjarbúa stöðugt verið aukin og þá ekki síst á árinu 2016. �?að er því ljóst að Vestmannaeyjabær og Eyjamenn mæta komandi verkefnum af styrk og festu. Í mínum huga er framtíð Vestmannaeyja gríðalega björt þótt næstu árum kunni að fylgja flókin verkefni. Sem fyrr skiptir þá mestu að Eyjamenn sjálfir sýni baráttuþrek, samstöðu og beri virðingu hver fyrir öðrum. �?að er og mun ætíð verða lykillinn að uppgangi í Eyjum.
Með djúpri þökk fyrir liðin ár og von um áframhaldandi uppbyggjandi samskipti, Eyjum og Eyjamönnum til heilla.
Elliði Vignisson
bæjarstjóri
Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF 12 Tbl Forsidan
12. tbl. 2025

NÝBURAR

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland
Laura Vähätalo og Orri Arnórsson

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.