Hlaðvarpið - Jórunn Lilja Jónasdóttir

Í sjöunda þætti er rætt við Jórunni Lilju Jónasdóttur um líf hennar og störf. Jórunn Lilja ræðir við okkur um lífshlaup sitt hvernig lífið var fyrir unga konu á frystitogara, fjölskylduna, sönginn og hvernig veikindi hennar hafa haft áhrif á hana í dag. 

Jórunn Lilja greindist með taugasjúkdóm sem kallast FND eða á Íslensku Starfræn taugaröskun. Við ræddum svolítið um FND því að apríl er vitundarvakningar mánuður FND. Hægt er að forvitnast meira um sjúkdómin á neurosymptoms.org og fndhope.org ásamt fleiri síðum.

Í seinni hlutanum ætluðum við að vera með viðtal við Engilbert Gislason listmálara en því miður þegar að við fórum að hlusta á viðtalið við hann við vinnslu þáttana þá byrjaði það vel en varð síðan óskiljanlegt vegna hljóðtruflana í staðin fundum við frásögn frá Þorsteini Þórði Víglundssyni sem fæddur var 19. október 1899 og lést 3. september 1984. Hann les upp grein sem hann nefndi Bernskuminningar og birtist sú grein í Blik. Blik var blað málfundafélag Gagnfræðiskólans í Vestmannaeyjum.

Endilega fylgjið okkur á Facebook og Instagram undir nafninu Vestmannaeyjar – Mannlíf og saga. Hér má hlusta á fyrri hlaðvörp Mannlífs og sögu

Nýjustu fréttir

Glacier Guys með nýtt föstudagslag
„Úttroðinn af loðnu”
Fréttapýramídar afhentir fyrir nýliðið ár
Karlar hvattir til að sýna handverk
Guðbrandur Einarsson segir af sér þingmennsku
Mikill áhugi á Eyjagöngum
Saltfisksala hjá meistaraflokkum ÍBV
ÍBV með mikilvægan sigur á ÍR
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.