Eftir fund ræddi blaðamaður við þau James Burleigh og Christine Dure-Smith frá Merlin en bæði eru þau vongóð og bjartsýn fyrir komandi tímum.
�??�?etta hefur tekið lengri tíma en við höfðum vonað en við er samt bjartsýn,�?? sögðu þau James Burleigh og Christine Dure-Smith þegar blaðamaður spurði út í framvindu mála. �??�?ll okkar samtöl við fólk hérna á Íslandi hafa verið jákvæð en það eru engin fordæmi fyrir svona löguðu, þetta er fordæmið, þannig að allir vilja vera vissir um að hér sé rétt staðið að verki. �?etta verkefni kom mjög óvænt þannig allir þurfa að fá sínar skýringar á því og þurfum við að sýna þolinmæði,�?? sagði James.
Hvernig fannst ykkur viðbrögð fólks hér í dag? �??Mjög góð, við erum í skýjunum. Augljóslega skildum við ekki það sem fram fór á íslensku en maður sá það í andlitum fólks að það er jákvætt gagnvart þessu og ánægt að fá nánari skýringar. Gagnsæi skiptir miklu máli svo fólk skilji ástæður okkur fyrir þessu verkefni. �?etta snýst ekki um neinn gróða heldur að gera hið rétta í stöðunni en það getur hljómað framandi í eyrum fólks þegar stórt fyrirtæki eins og Merlin er annars vegar,�?? sagði James.
Á öllum þeim stöðum sem heyra undir Merlin er það stefna fyrirtækisins að notast við heimamenn eins og unnt er. �??Jafnvel þótt við verðum með erlenda sérfræðinga til að byrja með þá viljum við þjálfa upp heimamenn svo þeir geti tekið við innan fárra ára. Í verkefni sem þessu, þar sem höfuðtilgangurinn er að gera það rétta í stöðunni, er mjög mikilvægt að samfélagið í heild sinni finnist það vera partur af verkefninu og verkefnið partur af þeim. Að því leyti finnst okkur Keikó verkefnið vera frábrugðið því sem við erum að gera þar sem þau voru frekar mikið út af fyrir sig. Við viljum vera staður fyrir Vestmannaeyjar frekar en fyrir Merlin,�?? sagði Christine.
Hvað mun þetta verkefni gera fyrir Vestmannaeyjar sem samfélag? �??�?etta er mjög áhugavert. �?að sem við höfum orðið var við hingað til er að það er mjög fjölbreytt verslun hérna og mikil kunnátta sem við höfum þegar sett okkur inn í, hvort sem það eru verktakar eða aðrir þá eru allir tilbúnir til að vinna með okkur. �?etta mun svo sannarlega skila enn einu stóra verkefninu til bæjarfélagsins sem í augnablikinu er í miklum framkvæmdum eins og allir vita. En við verðum líka að fara varlega því verkefni á þessari stærðargráðu og með þennan tilgang sem á sér engin fordæmi mun vekja athygli og fá mikla umfjöllun. Eyjan hefur sínar takmarkanir stærðarlega séð, hún getur ekki tekið á móti milljónum ferðamanna og verðum við því að varðveita það sem hún hefur upp á að bjóða og taka réttar ákvarðanir,�?? sagði James.
Mun taka tíma og þjálfun að venjast nýjum aðstæðum
Undir hvaða kringumstæðum þurfa hvalirnir að dvelja innandyra? �??Við höfum augljóslega ekki fullkomlega tæmandi rannsóknir á veðráttunni frá degi til dags, hvort sem það er ölduhæð, vindur eða annað. Víkin er nokkuð vel varin frá náttúrunnar hendi og getur verið allt að fjögurra metra ölduhæð fyrir utan hana án þess að það hafi áhrif á víkina sjálfa. Aftur á móti geta verið sterkir straumar og hringiður neðansjávar í víkinni og fyrir hvíthvali sem hafa verið í sundlaugum tekur tíma og þjálfun að venjast þessum aðstæðum. Fyrstu veturna þurfa hvalirnir líklega að koma inn en það er alls ekki víst en við mundum aldrei gera neitt sem gæti stofnað lífi þeirra og heilsu í hættu. �?angað til þeir verða nógu sterkir munum við hafa varann á,�?? sagði James og bætir við að það sé nokkuð auðveld aðgerð að koma hvölunum inn í hús. �??�?að verður auðvelt í samanburði við það að ferðast með hvalina í 35 klst. frá Shanghai.�??
�?egar talið barst að því hvort hvalirnir myndu þrífast í kletts-víkinni benti Christine á að Keikó hafi plummað sig vel alveg þangað til hann átti að fara að lifa í villtri náttúru. �??�?essi dýr eru mjög félagslynd og eru þessir þrír hvalir mjög vanir fólki. Ef bátur rennur upp að víkinni munu þeir vilja koma og rannsaka hvað sé um að vera og sömuleiðis þegar fólk er að klifra í fjöllunum, þeim þykir það áhugavert því hingað til hafa þeir nánast bara fengið að sjá öskrandi kínversk börn. �?etta mun vera fullkomlega frábrugðið því sem þeir hafa átt að venjast og alveg pottþétt betra.�??