Kallað er eftir sjálfboðaliðum til áburðardreifingar í hlíðum Eldfells kl. 17 á mánudaginn kemur, 10. júlí. Verkefnið hófst 2016 og á rætur að rekja til stjórnarsamþykktar í Vinnslustöðinni.
�??Stjórnin ákvað í tilefni sjötugsafmælis VSV að veita tíu milljónir króna í uppgræðslu við Eldfell á þremur til fjórum árum í samvinnu við Vestmannaeyjabæ. Við byrjuðum í fyrra, dreifðum aftur á uppstigningardeginum í ár og ætlum af stað í þriðja sinn núna 10. júlí,�??
segir Guðmunda Bjarnadóttir, fiskverkandi í Fiskvinnslu VE og varastjórnarmaður Vinnslustöðvarinnar. Hún stýrir verkefninu af hálfu VSV.
�??Við vorum 25 manns að dreifa áburði í þoku og sudda í vor. Nú er hásumar og útlit fyrir bjartviðri. �?g geri því ráð fyrir að fleiri sýni því áhuga að leggja góðu málefni lið og reyni ögn á sig í heilsubótarskyni í leiðinni!
Skeljungur kemur til skjalanna og gefur allan áburð til dreifingar á mánudaginn, sem við þökkum auðvitað kærlega fyrir. �?ar með er Skeljungur orðinn beinn þátttakandi í þessu samstarfsverkefni VSV og Vestmannaeyjabæjar.�??
Sagan öll í uppgræðslumálum í Eldfelli í ár hefur samt ekki verið sögð því 28. og 29. júlí stendur til að alþjóðlegur hópur skáta, allt að 30 manns, sái melgresi í hlíðum Eldfells.
Fyrirspurn barst um mögulegt samfélagsverkefni í Eyjum sem henta myndi skátunum og hugmynd kviknaði um að fela þeim að bæta melgresisþætti við uppgræðslusögu Eldfells.
�?að gengur eftir. Grænir fingur skátanna munu stuðla að því að græða upp landið í sumar og uppgræðsluverkefnið er þannig á góðri leið með að verða alþjóðlegt!