Besta árið í sögu Bergs-Hugins

Dótturfélag Síldarvinnslunnar í Vestmannaeyjum, Bergur-Huginn, gerir út Vestmannaey VE og Bergey VE. Nú hafa skipin lokið veiðum í ár og eru áhafnirnar komnar í vel þegið jóla- og áramótafrí. Að venju endaði árið með heljarinnar skötuveislu sem fram fór í gærkvöldi og þar var skálað fyrir frábærum árangri á árinu.

Árið sem er að líða er besta árið í sögu Bergs-Hugins og því fullt tilefni til að fagna. Skipin hafa landað vel yfir tíu þúsund tonnum af slægðum fiski á árinu og er það mesti ársafli sem þau hafa fært að landi. Næst besta árið var í fyrra en þá var ársaflinn 8.500 tonn. Bergey lýkur árinu með 5.230 tonnum og Vestmannaey með 4.922 tonnum. Meðalafli á sóknardag var 21 tonn á árinu. Samhliða hinum mikla afla hefur aflaverðmæti skipanna aldrei verið meira eða um 2,4 milljarðar króna.

Vestmannaey kom ný til landsins í marsmánuði 2007 og á árinu fór heildaraflaverðmæti skipsins yfir 10 milljarða. Bergey hóf veiðar fimm mánuðum síðar og mun hún rjúfa 10 milljarða múrinn fljótlega á nýju ári. Skipin hafa reynst afburða vel alla tíð og frá komu þeirra hafa þau veitt yfir 80.000 tonn af slægðum fiski og skilað 20 milljörðum króna í aflaverðmæti.

Um mitt næsta ár munu ný skip leysa núverandi Vestmannaey og Bergey af hólmi. Skipin eru í smíðum hjá Vard skipasmíðastöðinni í Aukra í Noregi.

 

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.