Verkefnin eru nokkur áður en skipið kemst í rekstur
20. júní, 2019
Guðbjartur Ellert Jónsson
„Ég hef ekki fengið neitt nema jákvæð viðbrögð og vonandi tekst okkur að standast væntingar með framhaldið,“ sagði Guðbjartur Ellertsson framkvæmdastjóri Herjólfs ohf í samtali við Eyjafréttir. Núna er unnið að því að koma nýja skipinu í rekstur en verkefnin eru nokkur áður en það gerist.
„Við erum núna að vinna í að gera það sem þarf til að koma Herjólfi í rekstur. Hluti af því snýr að leyfismálum það er farþegaleyfi, haffæri fyrir siglingaleiðirnar, uppfylla öll skilyrði fyrir öryggimál og gera skipið rekstrarhæft. Jafnframt er verið að undirbúa ferjuna til að takast á við alla okkar flutninga sem og að gera kaffiteríu og annað sem fylgir farþegaflutningum klárt,“ sagði Guðbjartur.
Spenntir að hefja starfsemi á nýju ferjunni
Það þarf að sigla nokkuð ört á ekjubrýrnar og máta ferjuna á þær og einnig þarf að gera lagfæringu á ekjubrúnni í Vestmannaeyjum. „Nýja ferjan er nokkuð frábrugðin þeirri eldri en mikilvægt er að aðkoma að bryggjum geti gegnið vel fyrir sig sem og lestun og losun. Við eigum eftir að reyna svolítið á þetta og eins þarf að setja upp nýtt vinnu- og verkskipulag þar sem umhverfið er tölverð annað en á eldri Herjólfi. Þetta mun taka einhvern tíma en við keppumst við að stytta þennan tíma eins og kostur er enda allir spenntir fyrir því að hefja starfsemi á nýju ferjunni,“ sagði Guðbjartur.
Þurfa að ná færni í að leggjast að ekjubrúnum
Guðbjartur segir að það þurfi að sigla á allar hafnir og láta svolítið reyna á sjóhæfni nýju ferjunnar. „Einfaldasti hlutinn er að sigla á milli hafna, mestur tími fer í að ná færni í að leggjast að ekjubrúnum. En þessi hlutir koma fljótt enda tíðar komur og brottfarir í áæltun okkar eða 14 á dag í heildina.“
Gæludýr fá sérstakt rými
Í eldri Herjólfi var sérstakt rými á bíladekki sem gékk undir nafninu dýraríkið og var ætlað undir hunda í hundabúrum eða önnur dýr. Ekkert svoleiðis athvarf er í nýju ferjunni, hvað á fólk sem þarf að ferðast með dýrin sín að gera? „Lengi vel átti rekstraraðilinn búr sem var til afnota fyrir eigendur hunda en að vel athuguðu máli og eftir samtöl við dýralækna þótti það ekki skynsamlegt þar sem hundar eru þefnæm dýr og skynja margt í umhverfi sínu. Það eru því meiri líkur en minni að hundarnir stressist við að fara í búr sem aðrir hundar hafa verið í. Best þótti að hundar væru í sínum eigin búrum og í umhverfi sem þeir þekkja best. Ef þeir koma með bílum eru þeir betri en allt annað. Í nýja Herjólfi er hannað rými sem er í farþegarými en það á eftir að meta hvort það sé skynsamlegt að nýta það, en mikilvægt er að skapa ekki aðstæður sem geta stressað hunda. Rýmið er lítið, þröngt og gluggaslaust. Við munum, ef það reynist ekki skynsamlegt að nýta það, finna aðra aðstöðu sem uppfyllir betri skilyrði. Jafnvel þó siglingaleiðin sé stutt þá tekur það hunda tölverðan tíma að venjast flutningum hvort heldur sem er í lofti eða á sjó, því verður að taka mið af því hvað er best er að gera til að tryggja velferð þeirra,“ sagði Guðbjartur.
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Koffínátín – fæst án lyfseðils
Postafen – fæst án lyfseðils
Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.
Önnur ráð:
Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing. Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.