Enn tekist á um listaverk
eldfell_tms
Eldfell. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Listaverk í tilefni 50 ára gosloka var til umfjöllunar á fundi bæjarráðs í liðinni viku.

Fram kemur í fundargerð að fyrir bæjarráði liggi tveir samningar og viljayfirlýsing. Samningur og viljayfirlýsing við menningar- og viðskiptaráðuneytið sem áður hafa verið kynntir bæjarráði, auk samnings við stúdío Ólafs Elíssonar.

Bæjarráð samþykkti með tveimur atkvæðum fulltrúa E og H lista gegn einu atkvæði fulltrúa D lista fyrirliggjandi samninga og viljayfirlýsingu og vísaði þeim til staðfestingar í bæjarstjórn.

„Ekki vilji hjá meirihlutanum að upplýsa bæjarbúa um framkvæmdina og ásýnd eða inngrip sem slík mannvirkjagerð mun hafa á Eldfell“

Í bókun frá Eyþóri Harðarsyni, fulltrúa D lista segir að undirritaður vísi í fyrri bókanir og umræður sem farið hafa fram um listaverkið. Það er þó ánægjulegt að samningur liggi fyrir til undirritunar tæplega ári eftir að listaverkið átti að verða tilbúið. Því miður er ekki vilji hjá meirihlutanum að upplýsa bæjarbúa um framkvæmdina og ásýnd eða inngrip sem slík mannvirkjagerð mun hafa á Eldfell. Til viðbótar samkvæmt fyrirliggjandi gögnum, þá virðist fjárhagslegur stuðningur við verkið ekki vera tryggður, ef verkið fer fram úr áætlun.

„Hafa fulla trú á því að umrætt listaverk verði bænum til sóma“

Í bókun frá Njáli Ragnarssyni og Jónu Sigríði Guðmundsdóttur, fulltrúum E og H lista segir að undirrituð ítreki að á þessum tímapunkti sé ekkert sem bendir til þess að ásýnd Eldfells eða náttúrunnar í kring verði raskað með óafturkræfum hætti enda á endanleg hönnun og útlit umrædds göngustígs og listaverksins alls eftir að fara í gegnum skipulagsferli áður en framkvæmdaleyfi verða gefin út. Þá mun stúdíó listamannsins kynna og vera í samstarfi við Vestmannaeyjabæ um framvindu verkefnisins eftir að samningur hefur verið undirritaður.

Ekkert hefur breyst varðandi fjármagn Vestmannaeyjabæjar í verkefnið sem samþykkt var samhljóða í bæjarstjórn haustið 2022 og er fjárhagsrammi verkefnisins skýr og bundinn í viljayfirlýsingu og samningum þar um. Undirrituð hafa fulla trú á því að umrætt listaverk verði bænum til sóma, segir í bókun meirihlutans.

https://eyjar.net/holdum-afram/

https://eyjar.net/stigandi-ahyggjur-listaverks/

https://eyjar.net/minnisvardinn-a-eldfelli-mikid-mannvirki/

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.