Nú er unnið hörðum höndum að því að fegra bæinn okkar og halda honum snyrtilegum.
Í frétt á vef bæjaryfirvalda segir að alls séu yfir 40 krakkar í vinnu við umhverfisstörf hjá Vestmannaeyjabæ sem sjá um að slá grasflatir, planta blómum og mála sem og sinna öðrum verkefnum til þess að gera bæinn okkar snyrtilegan.
Vinnuskólinn hefst svo 10. júní og bætist þá heldur betur við starfskraftinn en um 90 börn á aldrinum 13 til 16 ára koma til með að vera í Vinnuskólanum.
Markmið vinnuskólans er að undirbúa unglinga í vinnu áður en haldið er út á hinn almenna vinnumarkað. Vinnuskólinn er þó ekki einungis vinna heldur er einhver tilbreyting innifalin í skólanum, eins og í öðrum skólum.
Þar sem Vinnuskólinn hefur ekki neina sérstaka aðstöðu til umráða er ekki óeðlilegt að þau sjáist sitja og hvíla sig öðru hvoru.
Eiríkur Ómar Sæland stýrir allri sumarvinnu á vegum Vestmannaeyjabæjar í sumar en hann hefur mikla og góða reynslu af garðyrkjustörfum, segir jafnframt í fréttinni. Ef þið viljið koma einhverjum ábendingum áleiðis er hægt að senda á sumarstorf@vestmannaeyjar.is




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.