Þjóðhátíð sett í blíðskaparveðri
DSC 8568
Frá setningu Þjóðhátíðar. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Þjóðhátíð Vestmannaeyja var sett laust fyrir klukkan 15 í dag. Venju samkvæmt er það formaður ÍBV-íþróttafélags sem setur hátíðina. Það kom því í hlut Harðar Orra Grettissonar að gera það í ár en hann tók við formennsku í félaginu í vor. Þór Vilhjálmsson flutti í kjölfarið hátíðarræðu og sr. Viðar Stefánsson var með hugvekju.

Halla Tóm­as­dótt­ir, for­seti Íslands, var viðstödd setninguna í Herjólfs­dal en hún tók við embætt­i forseta í gær. Með Höllu í för var eig­inmaður henn­ar Björn Skúla­son og Lilja Al­freðsdótt­ir, menn­ing­ar- og viðskiptaráðherra.  Blíðskaparveður var á setningunni og mik­ill fjöldi fólks var sam­an kom­inn í Dalnum, en í ár fagn­ar Þjóðhátíð 150 ára af­mæli og því sérstaklega mik­ill fögnuður.

Óskar Pétur Friðriksson myndaði það sem fyrir augu bar í Herjólfsdal í dag.

Nýjustu fréttir

Börn í Eyjum mega þola löng ferðalög, lítinn svefn og óvissu
Dýpkun mistókst í morgun – reynt aftur í kvöld
Laxey og AKVA group semja um nýja seiðastöð
Hitað upp fyrir leik ÍBV og Hauka
Spurt og svarað: Sæunn frá Miðflokknum
Metþátttaka í The Puffin Run í ár
Álfsnes, kjarnaborun og höfnin
Vestmannaeyjar, eyjan okkar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.