Óli Lár og Helgi í Einarsstofu á laugardaginn

Lífshlaup mitt með myndavélina

„Það var árið 1968 sem ég fékk mína fyrstu myndavél. Fékk peninga í fermingargjöf sem ég brúkaði til kaupanna en hún entist ekki lengi, bráðnaði í sól í suðurglugganum í risinu á Brimhólabraut 29 og eyðilagðist. Þetta var kínversk vél sem ég keypti hjá Jöra í Tómstundabúðinni, var 6 x 6 sm myndavél og fór vel í hendi og reyndist vel,“ segir Ólafur Lárusson, kennari sem sýnir ljósmyndir sínar í Einarsstofu á laugardaginn. Er það áttundi laugardagurinn í sýningarröðinni, Vestmannaeyjar í gegnum ljósopið mitt. Með honum verður Helgi Tórzhamar.
„Við vorum tveir sem áttum myndavélar á Brimhólabrautinni í okkar uppvexti . Ég á númer 29 og Kjartan Eggertsson heitinn á númer 34. Við framkölluðum og vorum báðir með myrkraherbergi heima hjá okkur með öllum græjum, þá var allt í svart hvítum filmum, stækkara áttum við báðir og allt tilheyrandi, ég heima hjá mér og Kjartan heima hjá sér.“

Myndaði allt í Eyjum

Óli segir að þeir hafi myndað allt í Eyjum og báðir voru þeir í Skátafélaginu Faxa. „Við vorum að mynda í ferðum sem við fórum í og á skátamótum. Þetta þróaðist hjá mér og það var stór áfangi þegar ég keypti fyrstu 35 mm vél. Þá fór maður að taka litmyndir á pappír og litskyggnur. Þá voru filmur dýrar og þá varð að vanda sig. Vélin sem ég keypti hét Miranda og reyndist vel.“
Í dag á hann eina Nikon og eina Leica sem báðar eru mjög góðar og Leica er eitt virtasta merkið í ljósmyndaheiminum.
Árið 1970 fer hann með Hjálmari Bárðarsyni og fleirum, þáverandi siglingamálastjóra og ljósmyndara út í Geldung. „Hjálmar var frábær ljósmyndari, gaf út ljósmyndabækur og skildi eftir sig mikið og merkilegt ljósmyndasafn. Þessi ferð átti eftir að hafa mikil áhrif á mig. Það var ekki síður dýrmætt að kynnast Páli Steingríms og Myndlistarskólanum hans í Arnardrangi fyrir gos, og því fólki sem þar var. Hjálmar og Palli eru stórir áhrifavaldar í mínu lífu og gerðu mig vonandi að betri ljósmyndara.“
Óli hitti svo Hjálmar í gosinu 1973. „Við lentum á miklu spjalli sem hafði mikil áhrif á mig.“ Hjálmar var að taka myndir inni í botni sem kallað var.

Sólin stærri í Eyjum

Óli segir að ljósmyndun hafi gefið sér mikið sem eitt aðal áhugamál sitt og að það komi fram á sýningunni. „Ég hef haldið áfram að taka myndir af öllu sem fyrir augu ber en þó síst af fólki. Ég er mikið úti og það sem ég er að sækjast eftir er birtan. Palli Steingríms sagði að sólin væri stærri hér í Eyjum en annarsstaðar á landinu. Annars skipti ég sýningunni niður í tímabil og má segja að hún sé lífshlaup mitt með myndavélina.“
Eins og áður segir er sýningin klukkan 13.00 í Einarsstofu og eru rúllandi myndir á skjávarpa með útskýringum listamannanna í einn til einn og hálfan klukkutíma.

 

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland

Foreldrar

Laura Vähätalo og Orri Arnórsson
76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.
Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn

Foreldrar

Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson
Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon
Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson
462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.
Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.

Foreldrar

Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.
Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir
Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson
F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir
Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.
E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes

Foreldrar

Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson
Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Todor Hristov og Marta Möller
Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík

Foreldrar

Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson
Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani
IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi

Foreldrar

Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason
tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík

Foreldrar

Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir
nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík

Foreldrar

María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson
jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir
Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.