Stórt skref í menntamálum

Það er flestum kunnugt um að húsnæðiskostur Tónlistarskólans í Vestmannaeyjum er farinn að þarfnast verulegra úrbóta. Húsnæðið er orðið gamalt og aðgengi sérstaklega fyrir hreyfihamlaða ekki eins og best verður á kosið. Hamarskóla hefur gjarnan vantað matar- og samkomusal og frístundaverið hefur verið í húsnæði sem ekki var hannað fyrir starfsemi þess og þörf hefur verið á að koma í hentugra húsnæði til frambúðar og tengja það við skólann.
Undirrituð hafa barist hart fyrir því að gert verði ráð fyrir fjármagni í fjárhagsætlun sem fari í stækkun Hamarskóla þannig að þar rúmist einnig starfsemi Tónlistarskólans og frístundavers sem og að þar verði matar- og hátíðarsalur fyrir starfsemi skólanna.
Í fyrra lögðum við fram tillögu þess efnis að lagt yrði fjármagn í að hefja þessa vinnu fyrir síðustu fjárhagsáætlunargerð. Því miður hlaut sú tillaga ekki hljómgrunn meirihlutans sem felldi tillöguna.
Við erum því mjög stolt af því að á 1552. fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja var ákveðið að gera ráð fyrir fjármagni í fjárhagsáætlun í að hefja þetta verkefni. Við fögnum þessari ákvörðun sem mun stórbæta þjónustu, aðgengi og aðstöðu Hamarskóla, Tónlistarskóla og Frístundavers. Umræddar hugmyndir munu hafa ákveðna rekstrarhagræðingu í för með sér auk þess sem þær samræmast hugmyndum sveitarfélagsins um samræmda þjónustu við börn. Hér er verið að stíga stórt skref í bættri þjónustu við nemendur grunn- og tónlistarskóla sveitarfélagsins.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Fræðsluráði
Silja Rós Guðjónsdóttir og Ingólfur Jóhannesson

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.