Höfnuðu eina tilboðinu sem barst
Skoflustunga Hasteinsv 2024 IMG 6759
Skóflustunga vegna upphafsframkvæmda gervigrasvallar á Hásteinsvelli var tekin 1. nóvember. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Eitt mál var tekið fyrir á fundi framkvæmda- og hafnarráðs Vestmannaeyja í gær. Málið sem tekið var fyrir er vegna fyrirhugaðra framkvæmda á Hásteinsvelli, en til stendur að setja gervigras á völlinn.

Fram kemur í fundargerð að eitt tilboð hafi borist í útboð vegna jarðvinnu og lagna við Hásteinsvöll. Brynjar Ólafsson, framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs lagði til við ráðið að hafna tilboðinu þar sem það er verulega yfir kostnaðaráætlun. Framkvæmdastjóri lagði einnig til að fara aftur í útboð sem fyrst.

Ráðið samþykkti tillögu framkvæmdastjóra um að hafna framkomnu tilboði og fól honum að bjóða verkið út að nýju.

Myndin er tekin í byrjun mánaðarins þegar Erl­ing­ur Guðbjörns­son, formaður fram­kvæmda- og hafnarráðs Vest­manna­eyja­ og Íris Ró­berts­dótt­ir bæj­ar­stjóri Vestmannaeyja tóku fyrstu skólfustungurnar að verkinu auk iðkenda ÍBV.

Þessu tengt: Hásteinsvöllur: Ekki gert ráð fyrir hitalögnum

Nýjustu fréttir

Tími til kominn að taka næsta skref
Ákvarðanir fyrir framtíðarkynslóðir
Í dag eru 75 ár frá Glitfaxaslysinu
Hárígræðslur í Tyrklandi 
Húsið of hátt – skipulagi breytt eftir á og nágrannar ósáttir
Elliði fyrir leikinn gegn Dönum
Spáð í spilin fyrir stórleikinn í kvöld á EM
Tíðarandi liðinna ára í myndum í Sagnheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.