Tryggjum grunnþjónustuna
Vilhjálmur Árnason skrifar
Vilhj Arna Ads C
Vilhjálmur Árnason

Heilbrigðisþjónusta og samgöngumál hafa verið mér lengi hugleikin enda hluti af grunnstoðum samfélaga og mikilvægir innviðir sem allir íbúar samfélaga nýta sér á einn eða annan hátt.

Sú þjónusta sem veitt er í hverju samfélagi byggir fyrst og fremst á mannauðnum sem þar býr og af heimsóknum mínum á HSU í Vestmannaeyjum veit ég að þar er fjölbreyttur og stór hópur af hæfu og öflugu heilbrigðisstarfsfólki sem vill þjónusta samfélagið sitt vel til framtíðar.

Heilbrigðisstofnanir ekki síst á landsbyggðinni hafa hins vegar glímt við erfiðan mönnunarvanda, bæði gagnvart læknum og hjúkrunarfræðingum sem því miður hefur ekki tekist nægilega vel að leysa en ljóst að verður að vera meðal forgangsverkefna nýrrar ríkisstjórnar. Við verðum með fjölbreyttum leiðum að mæta þeim vanda sem allra fyrst. Við heyrum ákallið og viljum svara því.

Til að mæta þeim vanda vill Sjálfstæðisflokkurinn m.a.

  • innleiða fjárhagslega hvata fyrir heilbrigðisstarfsfólk sem starfar á landsbyggðinni til að ýta undir fjölgun lækna og annarra heilbrigðisstétta þar sem þörfin er brýnust
  • Skattaívilnanir fyrir heilbrigðisstarfsfólk sem flyst heim erlendis frá
  • Mikilvægt er að fjölga heilbrigðismenntuðum til að mæta þörf á heilbrigðisþjónustu til framtíðar.
  • Komið verði á verkefni sjúkraþyrlu mannaðri sérhæfðu heilbrigðisstarfsfólki til að draga úr viðbragðstíma en ekki síður til að auka faglegan stuðning bráðaviðbragðs á landsbyggðinni og bæta þannig starfsumhverfi heilbrigðisstarfsfólks í dreifðari byggðum
  • Tryggja aukið aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu með einfaldara niðurgreiðslukerfi og tækninýjungum
  • Mikilvægt er að hagur allra launþega geti batnað í landinu, bæði á almenna og opinbera markaðnum en til þess þarf kröftugt atvinnulíf og verðmætasköpun.

 

Auk þessa skipta tryggar samgöngur á sjó og lofti miklu máli. Heimamenn hafa staðið sig vel í rekstri Herjólfs og aukið tíðni ferða og bætt þannig þjónustu við samfélagið. Mikilvægt er að tryggt var reglulegt flug milli lands og Eyja yfir vetrartímann en betur má ef duga skal og augljóst að auka þarf ennfrekar þá þjónustu til framtíðar. Síðast en ekki síst er mikilvægt að tryggja fjármagn til áframhaldandi rannsókna á fýsileika jarðgangnagerðar til Vestmannaeyja.

Ég mun leggja mig allan fram við framgang þessara mála sem þingmaður Sjálfstæðisflokksins í suðurkjördæmi.

 

Vilhjálmur Árnason

  1. sæti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi

 

Nýjustu fréttir

Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan
Tanja er íþróttamaður mánaðarins
Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.