„Komið páskafrí hjá mannskapnum”
Sjorinn Opf
Trollið tekið inn. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Togararnir Bergur VE og Vestmannaey VE lönduðu í heimahöfn á sunnudaginn að afloknum stuttum túr. Bæði skip voru að veiðum í um það bil einn og hálfan sólarhring og var aflinn rúmlega 60 tonn hjá hvoru skipi segir í frétt á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Þar segir enn fremur að togararnir hafi verið að veiðum rétt vestan við Eyjar, við Skötuhrygg. Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergi, sagði að vel hafi fiskast. „Þarna var fínasta veiði, mest þorskur og ýsa og ufsi í bland. Síðan var öllu vestursvæðinu lokað vegna hrygningastopps en það verður opnað á ný á annan í páskum,” sagði Jón.

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, lét vel af veiðinni. „Það var ágæt veiði en svæðinu var lokað auk þess sem brældi og þá var farið í land. Nú er komið páskafrí hjá mannskapnum og það verður ekki haldið til veiða á ný fyrr en á annan í páskum,” sagði Birgir Þór.

Nýjustu fréttir

Breyttur útivistartími barna frá og með deginum í dag
Rokkið lifir – hOFFMAN sendir frá sér plötuna VIÐ í dag
Myllan flytur úr Dalnum – Eyjamenn hvattir til að halda ró sinni
Spáð hækkandi ölduhæð við Landeyjahöfn
Olís deildirnar hefjast í vikunni
Helgarnir sigruðu á 100 ára afmælismótum TV
Fræðsla um átraskanir í Landakirkju
Stefnt að þrýstiprófunum á NSL-4 í vikunni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.