Vestmannaeyingar eiga Vestmannaeyjar
Opið bréf til fjármálaráðherra, Daða Más Kristóferssonar:
30. apríl, 2025
Íris Róbertsdóttir

Nýlega birtist í fréttum að Óbyggðanefnd hefði komist að þeirri almennu niðurstöðu að eyjar og sker sem liggja nær en 2 km. frá landi, þ.e. jörð eða heimaeyju, væru eignarland eins og annað land jarðarinnar. Var um þessa niðurstöðu m.a. vísað í  2. kafla Rekabálks Jónsbókar.

Kröfum fjármálaráðherra um eyjar og sker þar sem þetta á við var þar með hafnað .

Í kröfulýsingu fjármálaráðherra frá  2. febrúar 2024 var gerð krafa um að Vestmannaeyjar væru þjóðlenda. Í ljósi framkominna eignaheimilda Vestmannaeyjabæjar að eyjunum, og í ljósi fyrrnefndrar niðurstöðu Óbyggðanefndar, óska ég hér með eftir því fyrir hönd Vestmannaeyjabæjar að þessi kröfugerð ríkisins verði í heild sinni dregin til baka.

Vestmannaeyjar eru ein heild

Vestmannaeyjar mynda ákveðna heild sem hefur verið nýtt með öllum mögulegum hætti af bændum í Eyjum allt frá landnámi. Fjarlægð milli eyjanna er  um 2 km. og styttri ef horft er út frá heildinni. Að mati Vestmannaeyjabæjar er eignarréttur að Vestmannaeyjum í heild sinni skýr og óvéfengjanlegur, þ.m.t. Heimaey, úteyjar og sker. Samkvæmt Landnámu voru Vestmannaeyjar numdar af Herjólfi Bárðarsyni bónda í Herjólfsdal og syni hans Ormi. Vestmannaeyjar voru í eigu bænda frá landnámi en komust í eigu Skálholtsstaðar í biskupstíð Magnúsar Einarssonar, Magnús varð biskup í Skálholti 1134. Vestmannaeyjar í heild sinni urðu síðar konungseign, fyrst þess norska og síðar þess danska og taldar sérstök eign konungs.

Eignarréttur konungs á Vestmannaeyjum færðist svo yfir til íslenska ríkisins 1874 og  sá eignarréttur var framseldur, með sérstökum lögum  frá Alþingi, frá íslenska ríkinu til Vestmannaeyjabæjar 23. ágúst 1960 með afsali sem þinglýst var 17. nóvember sama ár. Í meðförum Alþingis kemur skýrt fram að afsalað er öllum eignarrétti íslenska ríkisins, þ.m.t. úteyjar allar.

Hver tilgangurinn?

Því spyr ég fyrir hönd Vestmannaeyjabæjar hver er tilgangurinn með þessari kröfugerð fjármálaráðherra? Af hverju freistar ráðherra þess nú að hnekkja ákvörðun Alþingis og ríkisstjórnar frá 1960? Hvert er vandamálið sem fjármálaráðherra telur sig vera að leysa með þessari kröfugerð? Hverju væri ríkið bættara með að hrifsa eignarhaldið á Vestmannaeyjum frá Vestmannaeyingum?

Vestmannaeyjabær er handhafi beins eignarréttar að Vestmannaeyjum í heild sinni, með þeim undantekningum sem fram koma í afsali 1960, og enn má telja í gildi þ.e. vitajörðina Stórhöfða sem ríkið hélt eftir.

Ítrekuð er óskin um að krafa ríkisins um að Vestmannaeyjar teljist þjóðlenda, verði dregin til baka nú þegar, enda ljóst að hún hefur byggst á misskilningi, eins og rakið hefur verið, og á sér enga stoð hvorki sögulega né lagalega. Ríkið getur ekki kallað til sín eign sem það hefur selt og afsalað með sérstakri lagasetningu á Alþingi.

Það er komið gott!

Ég skora á þig ráðherra fjármála að hætta að reyna að eignast hluta Vestmannaeyja, leggja þessa óbyggðarvegferð af – Vestmannaeyjar eru byggð en ekki óbyggð – og spara í leiðinni háar fjárhæðir fyrir ríkisjóð vegna málareksturs fyrir dómstólum. Fjárhæðir sem væri hægt að nýta í nauðsynleg verkefni eins og að bæta vegakerfið eða styðja við framþróun í menntakerfinu.

 

Kærar kveðjur frá Eyjum

Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst