„Frábærum Styrkleikum lauk í gær. Við þökkum öllum sem þátt tóku og lögðu hönd á plóg til þess að þetta mætti verða að veruleika. Sérstaklega þakka ég Jónasi, Ellert og þeirra fólki hjá ÍBV fyrir lánið á aðstöðunni og heildverslun HKK og Ísfélaginu fyrir þeirra aðstoð,“ segir Bjarni Ólafur, talsmaður Styrkleikanna sem stóðu í sólarhring, frá hádegi á laugardag fram að hádegi í gær.
Söngvararnir Sara, Una og Jarl, Leikfélag Vestmannaeyja, lögreglan og Jón Valgarð og Kalli hjá GV fá innilegar þakkir fyrir aðstoðina við fjölskylduskemmtunina. „En bestu þakkirnar fá Þóranna, Olga, Steingrímur og Guðni frá Krabbavörn í Vestmannaeyjum sem stóðu vaktina með okkur allan tímann og unnu þetta af mikilli fagmennsku.
Frá Krabbameinsfélaginu kom svo hún Rakel. Elsku Rakel Ýr, Óli, Bergur Nonni og Hekla Rán. Takk fyrir ykkar frumkvæði og alla aðstoðina. Þetta var gaman og gefandi verkefni og nú höldum við bara áfram Ég er viss um að margir af þeim sem gengu með okkur fóru í einhverja tugi km sem samtals urðu um 900.
Sjálfur gekk ég og hljóp rétt um 40 km sem er ekki langt frá heilu maraþoni. Það var svo sannarlega þess virði að leggja á sig göngu, hlaup og talsverða vöku til að minna sig á þennan vágest og það að hann fer aldrei í frí, aldrei. Enn er hægt að styrkja verkefnið og t.d. eru hópurinn okkar, Fyrir Úlla tilbúinn til að taka við framlögum,“ sagði Bjarni Ólafur.
Myndir Óskar Pétur.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst