Vigtartorg​: ​Svið og skjálausn í skoðun
Myndin er tekin á Vigtartorginu í sumar.

Enn á eftir að ljúka framkvæmdum á Vigtartorg. Eftir á að klára svið og skjálausn sem mun nýtast fyrir viðburði og gesti á torginu. Á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja var lögð fram tillaga frá E- og H-listum þar sem lagt er til að ljúka framkvæmdum og fela framkvæmdastjóra að skoða útfærslu og kostnað, til að leggja fyrir næsta fund bæjarráðs.

Svæðið er þegar til fyrirmyndar, en sviðið er stór hluti þess og mikilvægt að huga að notagildi þess fyrir tónleika, hátíðir og aðra viðburði. Skjálausn á sviðinu gæti einnig virkað sem upplýsingagluggi, meðal annars fyrir höfnina þegar skemmtiferðaskip koma, auk þess að nýtast fyrir ýmsa aðra viðburði á torginu​, segir í greinargerð með tillögunni.

Ráðið samþykkti að fela framkvæmdastjóra að skoða útfærslu, kostnaðarmeta kosti og leggja fyrir ráðið á næsta fundi svo hægt er að vísa málinu áfram í vinnu við fjárhagsáætlun 2026.

Nýjustu fréttir

Ágæt veiði hjá Eyjunum
Rafmagn fór af allri eyjunni: „Greitt fyrir öryggi sem hélt ekki“
Börn í Eyjum mega þola löng ferðalög, lítinn svefn og óvissu
Dýpkun mistókst í morgun – reynt aftur í kvöld
Laxey og AKVA group semja um nýja seiðastöð
Hitað upp fyrir leik ÍBV og Hauka
Spurt og svarað: Sæunn frá Miðflokknum
Metþátttaka í The Puffin Run í ár
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.