Handhafar Fréttapýramída 1992-95
Handhafar Frétta-pýramídanna 1993: F.v. Sigmund Jóhannsson, Stefán Sigurjónsson stjórnandi Lúðrasveitar Vestmannaeyja og Lárus Jakobsson.

Aðsend grein

Samantekt: Gísli Valtýsson

Við höldum áfram að rifja upp hverjir hafa hlotið Fréttapýramídana í gegnum árin og það merkilega starf sem þar er heiðrað. Þótt miðað sé við tiltekið ár við val á handhöfum Fréttapýramída er jafnan litið til lengri tíma, enda eiga flestir verðlaunahafar að baki margra ára giftudríkt starf í Vestmannaeyjum. Sameiginlegt er að störf þeirra hafa skilað þeim í fremstu röð, ekki aðeins í Vestmannaeyjum heldur einnig á landsvísu.


Fréttapýramídinn 1992

Þeir sem hlutu Fréttapýramídana fyrir árið 1992 voru Páll Helgason, ferðafrömuður, fyrir framlag hans til ferðamála og atvinnumála í Vestmannaeyjum, Sigmar Þröstur Óskarsson, markvörður ÍBV í handbolta, fyrir framlag til íþróttamála í Vestmannaeyjum og Jóhann Jónsson, myndlistarmaður, fyrir framlag hans til lista í Vestmannaeyjum.


Fréttapýramídinn 1993

Fréttapýramídarnir fyrir árið 1993 voru afhentir við athöfn á veitingastaðnum HB-pöbb. Að þessu sinni komu þeir í hlut Sigmunds Jóhannssonar, Lárusar Jakobssonar og Lúðrasveitar Vestmannaeyja.
Sigmundur hlaut Fréttapýramída fyrir framlag sitt til atvinnumála og öryggismála sjómanna, Lárus fyrir framlag til íþróttamála og Lúðrasveit Vestmannaeyja fyrir framlag til menningarmála.


Fréttapýramídinn 1994

Fréttapýramídarnir voru afhentir í fjórða sinn á HB-pöbb. Að þessu sinni komu þeir í hlut Handknattleiksráðs kvenna ÍBV fyrir framlag til íþróttamála, Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum fyrir framlag til menntamála og hjónanna Guðfinnu Ólafsdóttur og Erlendar Stefánssonar fyrir framlag til umhverfismála.
Gaujulundur, sem er gróðrarvin í nýja hrauninu, er alfarið þeirra framtak og hefur vakið mikla athygli og aðdáun þeirra sem hann heimsækja.


Fréttapýramídinn 1995

Handhafar Fréttapýramídanna fyrir árið 1995 voru prestarnir og hjónin Jóna Hrönn Bolladóttir og Bjarni Karlsson, Fiska- og Náttúrugripasafn Vestmannaeyja og frjálsíþróttakonan Árný Heiðarsdóttir.
Jóna Hrönn og Bjarni hlutu Fréttapýramídann fyrir æskulýðs- og safnaðarstörf í Landakirkju, safnið fyrir framlag til menningarmála og Árný Heiðarsdóttir fyrir framlag sitt til íþrótta og árangur í íþróttum.

Nýjustu fréttir

ÍBV strákarnir urðu einnig Powerade bikarmeistarar í 3. flokki
Dýpið mælt í Landeyjahöfn
ÍBV Powerade bikarmeistari í 3. flokki kvenna
Mars heilsar með frosti
Vel heppnað námskeið í Hvíta húsinu
Loðnuvertíðin líflína fyrir japanskan markað 
Elliði með stórleik gegn Kiel
Laxey – Metnaðarfull uppbygging sem styrkir atvinnulíf og framtíð samfélagsins
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.