Ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE eru að gera það gott. Bergey landaði tæplega 50 tonnum í Eyjum á laugardag og er aftur að landa þar fullfermi í dag. Vestmannaey landaði einnig fullfermi í Þorlákshöfn á mánudagskvöld. Rætt er við við skipstjórana á vefsíðu Síldarvinnslunnar í dag.
Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey, var sáttur við veiðina. „Við byrjuðum á að fara stuttan túr og var þá veitt við Pétursey og Vík, þar sem fengust þorskur og ufsi. Síðan varð tregara þar og þá var haldið til Eyja og landað. Að löndun lokinni var haldið í Meðallandsbugtina þar sem fékkst ýsa. Við færðum okkur síðan á Ingólfshöfða þar sem fékkst þorskur.
Þá var komið að því að reyna fyrir sér í Lónsbugtinni, þar sem fékkst góð blanda af ýsu og þorski. Við lukum síðan túrnum á Höfðanum en þá var komin skítabræla. Það er fullfermi landað úr skipinu í dag,“ sagði Jón.
Skipstjóri á Vestmannaey í veiðiferðinni var Valtýr Bjarnason, annar stýrimaður skipsins, en þetta er annar túrinn sem hann fer sem skipstjóri. Fyrsta túrinn í skipstjórastólnum fór hann fyrir rúmlega ári.
Valtýr segir að auðvelt sé að taka við skipstjórahlutverkinu enda sé um frábæra áhöfn að ræða og alltaf hægt að fá góð ráð hjá Birgi Þór Sverrissyni skipstjóra og Agli Guðna Egilssyni, fyrsta stýrimanni.
„Við fengum gott veiðiveður í túrnum og hann gekk eins og í sögu. Uppistaða aflans var þorskur og ýsa en einnig fékkst dálítið af ufsa og steinbít. Við hófum veiðar við Pétursey og Vík en síðan var veitt í eina nótt á Ingólfshöfða. Þá var haldið í Lónsbugtina þar sem veiddist vel.
Við enduðum loks aftur á Höfðanum á bakaleiðinni. Í Lónsbugtinni vorum við stutt frá loðnuskipunum og fylgdum síðan í kjölfar þeirra þegar þau færðu sig vestur með suðurströndinni. Þegar við héldum í land voru loðnuskipin komin vestur fyrir Höfðann. Þessi túr gat vart gengið betur,“ sagði Valtýr.
Vestmannaey heldur á ný til veiða í dag og Bergey á morgun, segir að endingu í fréttinni.