Vestmannaeyjar - Alveg milljón
default
Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson
Jóhann Halldórsson

Aðsend grein

Jóhann Halldórsson

Fasteignir eru nú í fyrsta skiptið skráðar til sölu á yfir milljón á fermeterinn !!!!

Hérna kemur enn ein birtingarmyndin af þeim efnahagsumsvifum sem eru að eiga sér stað í Eyjum, þar sem sennilega hefur aldrei verið eins mikið í gangi og jafn mikil verðmætasköpun að eiga sér stað á einu atvinnusvæði á Íslandi.

Eyjamenn eru enda í öfundsverðri stöðu þessa dagana. Góð loðnuvertíð í gangi sem eykur kaupmátt yfir 200 fjölskyldna beint og fjölda annarra óbeint í bæjarfélaginu.

Í nýlegu bréfi Jóns Sigurðssonar forstjóra Stoða er 33% hlutur félagsins í landeldisfyrirtækinu First Water metinn á 14,3milljarða og er því félagið metið i heild á 43,3 milljarða.

Miðað við þessar tölur hjá First Water er óhætt að bera sambærilega upphæð við Laxey og sennilega gott betur.

Enda var Laxey kosið bjartasta vonin í íslensku atvinnulífi 2025 og er nú orðið leiðandi landeldi á Íslandi og mun sennilega vera innan skamms verða eitt af leiðandi landeldisfyrirtækjum í heiminum.

Til að setja þessa upphæð í eitthvert samhengi hefur náðst í Vestmannaeyjum á stuttum tíma að byggja upp fyrirtæki frá grunni sem er því metið sennilega á upphæð sem yrði deilt niður á alla Eyjamenn.

Jafngilda um 10.000.000kr á haus !!!!

Við þetta bætist svo framtakssemi aðila hjá Eyjagöng sem hafa sótt fjármagn til að hefja rannsóknir vegna jarðganga milli lands og Eyja.

Auk aukinna umsvif í ferðaþjónustunni þar sem skemmtiferðaskipið Herjólfur setti met á síðasta ári og árið í ár lítur vel út.

O.fl. o.fl..

 

Nýjustu fréttir

Strangar hæfiskröfur í útboði heilsuræktar
Ísfélagið áfram einn af aðalstyrktaraðilum KFS
Útflutningsverðmæti sjávarafurða um 360 milljarðar
Eyjarnar lönduðu fullfermi í Eyjum um helgina
Vestmannaeyjar – Alveg milljón
Kæru Eyjamenn, kæru sjálfstæðismenn
Drangavík VE dregin til hafnar eftir að veiðarfæri fóru í skrúfu – uppfært
Magnús Kjartan ekki með brekkusönginn í ár
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.