Eyjarnar lönduðu fullfermi í Eyjum um helgina
Eyjarnar í heimahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Ísfisktogararnir í Síldarvinnslusamstæðunni hafa allir landað síðustu dagana. Rætt er við skipstjórana á vef-fréttasíðu fyrirtækisins.

Einar Ólafur Ágústsson, skipstjóri á Jóhönnu Gísladóttur GK, greindi frá því að skipið hefði landað á föstudaginn og síðan væri það að landa aftur í dag. „Við lönduðum 41 tonni á Grundarfirði á föstudaginn. Það var eftir stuttan túr og við vorum mest að veiða karfa í Nætursölunni og í kringum Víkurálinn. Að löndun lokinni var haldið beint út aftur og veitt í Nætursölunni, Víkurálnum og á Jökultungunni. Aftur var það karfi sem helst var á dagskránni. Við erum svo að landa á ný rúmlega 50 tonnum í Hafnarfirði í dag. Ég myndi segja að veiðin hafi verið frekar róleg á þessum miðum en veður var að mestu leyti gott. Þarna urðum við varir við loðnu allvíða og sums staðar lá hún alveg niður við botn,” sagði Einar Ólafur.

Vestmannaey VE landaði fullfermi í Vestmannaeyjum á sunnudagsmorgun. Birgir Þór Sverrisson skipstjóri var ánægður með túrinn. „Við byrjuðum túrinn í Meðallandsbugt og síðan færðum við okkur í Breiðamerkurdýpið. Uppistaða aflans var ýsa og þetta var ágætis fiskur. Þarna var engin kraftaveiði en gott kropp. Mér finnst í reynd vanta vertíðarþorskinn á þessi mið ennþá,” sagði Birgir Þór.

Systurskip Vestmannaeyjar, Bergey VE, landaði einnig fullfermi í Eyjum á sunnudaginn. Jón Valgeirsson skipstjóri var ágætlega sáttur við veiðiferðina. „Aflinn sem við komum með var mest ýsa en einnig ufsi og þorskur. Við byrjuðum á að reyna við ufsa á Pétursey en þar var tiltölulega lítið að hafa. Síðan var veitt á Ingólfshöfða og í Breiðamerkurdýpinu og þar fékkst mest ýsa og dálítill ufsi með. Þarna náðum við að klára að fylla í fínasta veðri áður en skítabræla skall á. Það var bullandi bræla á heimleiðinni,” sagði Jón.

Gullver NS kom til heimahafnar á Seyðisfirði á laugardagskvöld en landað var úr skipinu á mánudagsmorgun. Hjálmar Ólafur Bjarnason skipstjóri var ágætlega ánægður með túrinn. „Þetta gekk ágætlega og aflinn var 90 tonn að loknum fjögurra daga túr. Við vorum allan tímann í Berufjarðarálnum í fínasta veðri. Aflinn var mest þorskur og ýsa ásamt smávegis af karfa,” sagði Hjálmar Ólafur.

Nýjustu fréttir

Strangar hæfiskröfur í útboði heilsuræktar
Ísfélagið áfram einn af aðalstyrktaraðilum KFS
Útflutningsverðmæti sjávarafurða um 360 milljarðar
Eyjarnar lönduðu fullfermi í Eyjum um helgina
Vestmannaeyjar – Alveg milljón
Kæru Eyjamenn, kæru sjálfstæðismenn
Drangavík VE dregin til hafnar eftir að veiðarfæri fóru í skrúfu – uppfært
Magnús Kjartan ekki með brekkusönginn í ár
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.