Útflutningsverðmæti sjávarafurða um 360 milljarðar
DSC_8031
Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Útflutningsverðmæti sjávarafurða nam um 359 milljörðum króna á árinu 2025. Það er tæplega 4% aukning í krónum talið frá fyrra ári. Þar sem gengi krónunnar var að jafnaði um 4½% sterkara á árinu 2025 en árið 2024, var aukningin nokkuð meiri í erlendri mynt, eða rúm 8%. Frá þessu er greint í Radarnum, fréttabréfi SFS.

Þorskur og ýsa vega þungt

Útflutningsverðmæti botn- og flatfiskafurða nam rúmlega 253 milljörðum króna á árinu 2025 og jókst um rúm 13% á föstu gengi milli ára. Aukninguna má að langstærstum hluta rekja til tveggja fyrirferðamestu fisktegundanna, þorsks og ýsu.

Útflutningsverðmæti þorskafurða nam um 155 milljörðum króna, sem er 13% aukning á föstu gengi milli ára. Mest var aukningin í sjófrystum flökum (38%), landfrystum flökum (19%) og söltuðum afurðum (17%). Á sama tíma dróst útflutt magn saman um 2%, sem sýnir að verðhækkanir lágu að baki aukningunni.

Útflutningsverðmæti ýsuafurða nam tæplega 42 milljörðum króna og jókst um 27% á föstu gengi milli ára. Mest var aukningin í sjófrystum flökum (59%), landfrystum flökum (16%) og ferskum flökum (9%). Afurðaverðshækkanir gegndu jafnframt meginhlutverki í aukningunni, líkt og hjá þorski, enda dróst útflutt magn saman um 4%.

Af öðrum tegundum má nefna að verðmæti ufsa jókst um rúm 12% á föstu gengi og karfa um 10%. Á móti dróst útflutningsverðmæti grálúðu saman um rúm 5%.

Makríll fyrirferðarmikill

Útflutningsverðmæti uppsjávarafurða nam rúmlega 89 milljörðum króna á árinu 2025 og stóð nánast í stað á milli ára. Af uppsjávartegundum bar hæst veruleg aukning í útflutningsverðmæti makrílafurða, sem jókst um 47% á föstu gengi milli ára. Á sama tíma jókst útflutt magn um fimmtung og er því ljóst að afurðaverðshækkanir hafi gegnt veigamiklu hlutverki, líkt og hjá þorski og ýsu.

Einnig varð umtalsverð aukning í útflutningsverðmæti loðnuafurða, eða um 28% á föstu gengi milli ára. Í því samhengi ber að hafa í huga að loðnubrestur var árið 2024 og aflamark 2025 takmarkað, þannig að aukningin endurspeglar að hluta lágan samanburðargrunn. Á hinn bóginn dróst útflutningsverðmæti síldarafurða saman um 11% og kolmunna um 12%.

Rétt er þó að hafa í huga að tegundaskipting uppsjávarafurða í gögnum um útflutning er ekki fullkomlega nákvæm, þar sem talsverður hluti aflans fer í framleiðslu á mjöli og lýsi. Slík framleiðsla byggist oft á blöndu uppsjávartegunda og er útflutningur þá ýmist skráður undir tilteknar uppsjávartegundir eða almennari tollskrárflokka.

Verðhækkanir í kjölfar skerðinga á aflaheimildum

Ótal þættir hafa áhrif á útflutningsverðmæti sjávarafurða frá einu ári til annars. Af ofangreindu má vera ljóst að á árinu 2025 bar einna hæst til tíðinda umtalsverð hækkun á afurðaverði á erlendum mörkuðum. Þá hækkun má meðal annars rekja til aflaskerðingar á Barentshafi og komu áhrifin glögglega fram í verði þorsk- og ýsuafurða.

Jafnframt hefur umtalsverð skerðing verið á aflaheimildum makríls undanfarin ár og fyrir árið 2026 var hún sérstaklega mikil. Ráðgjöf Alþjóða hafrannsóknaráðsins (ICES) fyrir árið 2026 fól í sér um 70% lækkun á heildarafla makríls, þar sem hrygningarstofninn var kominn undir varúðarmörk. Slíkur samdráttur í framboði, bæði vegna fyrri skerðinga og boðaðrar lækkunar fyrir árið 2026, ýtti undir umtalsverðar verðhækkanir.

Á myndinni hér fyrir neðan sést hvernig samspil þriggja þátta – afurðaverðs, magns og gengis krónunnar – hefur áhrif á útflutningsverðmæti sjávarafurða í heild í krónum talið. Þar sést að aukninguna má alfarið rekja til afurðaverðs, sem heilt á litið hækkaði um 15% í erlendri mynt. Sú hækkun vó ekki aðeins upp á móti samdrætti í útfluttu magni (6%) heldur einnig áhrifum styrkingar á gengi krónunnar, sem eðli máls samkvæmt dregur úr útflutningstekjum í krónum talið.

Vissulega er þróunin á útflutningsverðmæti ekki algildur mælikvarði á stöðu sjávarútvegs og áhrif hans heima fyrir. Verðhækkanir ársins byggjast að stærstum hluta á skerðingu aflaheimilda, sem á sama tíma gerir fyrirtækjum erfiðara um vik að tryggja nægt hráefni til að halda vinnslu gangandi og tryggja heilsársstörf. Hærra verð endurspeglar í þessu tilviki fyrst og fremst samdrátt í framboði fremur en aukinn styrk eða vöxt greinarinnar. Raunverulegur ávinningur af sjávarútvegi felst í stöðugri verðmætasköpun, atvinnu og fjárfestingu hér á landi.

Greinin byggist á gögnum Mælaborðs Radarsins, sem nýlega hefur verið uppfært. Þar er einnig ítarleg sundurliðun eftir tegundum, afurðaflokkum og mörkuðum.

Nýjustu fréttir

Þrjú lið frá ÍBV í bikarúrslitum um helgina
Strangar hæfiskröfur í útboði heilsuræktar
Ísfélagið áfram einn af aðalstyrktaraðilum KFS
Útflutningsverðmæti sjávarafurða um 360 milljarðar
Eyjarnar lönduðu fullfermi í Eyjum um helgina
Vestmannaeyjar – Alveg milljón
Kæru Eyjamenn, kæru sjálfstæðismenn
Drangavík VE dregin til hafnar eftir að veiðarfæri fóru í skrúfu – uppfært
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.