Tómas Bent lék allan leikinn í sigri Hearts
Tómas Bent Magnússon.

Eyjamaðurinn Tómas Bent Magnússon spilaði allan leikinn í 1-0 sigri Hearts á Aberdeen í Skosku úrvalsdeildinni í fótbolta fyrr í dag. 

Tómas lék á miðsvæðinu hjá Hearts þegar liðið fékk Aberdeen í heimsókn til Edinborgar. Heimamenn voru sterkari aðilinn í leiknum og komust í 1-0 eftir tæplega hálftíma leik. Claudio Braga skoraði mark Hearts. Ekki voru fleiri mörk skoruð og mikilvægur sigur Hearts staðreynd. 

Hearts er á toppi skosku deildarinnar með 63 stig, sjö stigum á undan Rangers, sem eiga þó leik til góða. Aberdeen er í áttunda sæti með 29 stig. 

Hearts leikur næst gegn Kilmarnock á útivelli, laugardaginn 14. mars.

Nýjustu fréttir

Spurt og svarað: Hildur Rún frá Eyjalistanum
ÍBV á útivelli gegn Val
Aldan enn of há fyrir Álfsnes
Kjarnaboranir hefjast í Eyjum: „Stærsti áfangi í sögu félagsins til þessa“
Vel heppnaður fundur
Krefjandi umræða styrkir okkur
Viðbragð við svari Eyþórs
Sterkari grunnskóli og öflugri framtíð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.