Bæjarráð Vestmannaeyja kom saman á aukafundi í gærmorgun vegna stöðunnar sem komin er upp varðandi dýpkunarmálin í Landeyjahöfn. Daginn áður hafði Vegagerðin tilkynnti um bilun í vél við hliðarskrúfu í Álfsnesinu þegar það var við dýpkun í Landeyjahöfn aðfaranótt mánudags og þurfti skipið frá að hverfa.
„Kom fram hjá Vegagerðinni að væri til vél í landinu tæki um þrjá daga að gera við en annars gæti tími án dýpkunar orðið allt upp í fjórar vikur. Bæjarstjóri og framkvæmdastjóri Herjólfs funduðu í kjölfarið með Vegagerðinni og lögðu áherslu á að grípa þyrfti til aðgerða án tafar og leita leiða til að halda dýpkun áfram. Jafnframt var bent á mikilvægi þess að íbúar og atvinnulíf í Vestmannaeyjum þyrftu ekki að sæta skertum samgöngum til lengri tíma.
Kjartan Elíasson, verkfræðingur hjá Vegagerðinni, var gestur á fundi bæjarráðs og fór yfir nýjustu stöðu mála. Þar kom fram að ný vél sé væntanleg til landsins í næstu viku og að gert sé ráð fyrir að dýpkunarskipið geti hafið störf að nýju fimmtudaginn 12. mars, gangi áætlanir eftir.
Bæjarráð leggur áherslu á að sú tímaáætlun sem Vegagerðin hefur kynnt standist og að fyrir liggi viðbragðsáætlun komi til frekari bilana. Þá hvetur ráðið innviðaráðuneytið og þingmenn Suðurkjördæmis til að tryggja Vegagerðinni nauðsynlegt fjármagn svo hún geti sinnt hlutverki sínu,“ segir í fundargerð.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.