„Ísfélagið er á síðustu metrunum í loðnuveiðinni. Heimaey og Sigurður bíða löndunar í Eyjum og Suðurey er á leið til Þórshafnar. Við eigum eftir að veiða tæp 2000 tonn og klárast okkar kvóti vonandi fyrir helgi. Álsey verður á miðunum á morgun fimmtudag,“ sagði Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri Ísfélagsins í morgun.
Sama er uppi á teningnum hjá Vinnslustöðinni nema að þar er kvótinn búinn. „Við erum búin að veiða allar okkar heimildir í loðnu og erum að landa síðustu förmunum. Ættum að klára vinnslu um helgina,“ sagði Sindri Viðarsson sviðsstjóri uppsjávarsviðs Vinnslustöðvarinnar þegar rætt var við hann í hádeginu.
„Við erum virkilega ánægð með hvernig vertíðin hefur gengið og framleiðslan hefur verið í takt við áætlanir,“ sagði Sindri.
Samtals ráða Ísfélag og Vinnslustöð yfir þriðjungi heildarkvótans og er Ísfélagið með 30.000 tonn og Vinnslustöðin 20.000 tonn. Stærsti hlutinn var unninn til manneldis, loðnan fryst og hrognin unnin á lokasprettinum.