Það er ekki annað að sjá en að vel fari um dæluskipið Álfsnes á Bíldudal við Arnarfjörð þessa dagana. Skipið er í eigu Björgunar sem er með samning við Vegagerðina um sanddælingu í Landeyjahöfn. Álfsnesið var boðið fram sem skip sem átti að uppfylla tilskyldar kröfur, en útkoman hefur því miður verið mikil vonbrigði.
Frá áramótum hefur tíðarfar verið óhagstætt til siglinga í Landeyjahöfn og hefur það ekki bætt stöðuna að Álfsnesið er annað hvort víðsfjarri eða bilað þegar aðstæður hafa verið hagstæðar til dælingar. Nú er Álfsnesið í skjóli vestfirskra fjalla og verður líklega ekki til staðar þegar veður og sjór ganga niður við Landeyjahöfn.
Spurningin er því: Hve miklu tjóni hefur vanbúið skip valdið Vestmannaeyjum – og hver ber ábyrgð? Björgun?