Páskaeggjaleit Sjálfstæðisflokksins
DSC_5708
Páskaeggjaleit Sjálfstæðisflokksins er ávallt vel sótt. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Árleg páskaeggjaleit Sjálfstæðisflokksins í Vestmanneyjum fer fram nk. laugardag 4. apríl. Eins og venjulega fer leitin fram á Skansinum og hefst stundvíslega kl. 15:00.

Leitinni verður startað formlega á staðnum kl. 15 en allir eiga að bíða við virkið á Skansinum þar til leitinni verður startað af Eyþóri Harðarsyni, oddvita framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 16. maí nk. og ekki þýðir að hefja leit fyrr en merki hefur verið gefið.

Meira en 300 páskaegg af ýmsum stærðum og gerðum verða í boði fyrir leitarfólk og því vel þess virði að mæta og taka þátt, en fjöldamörk verða sett á hvað hver og einn má finna af eggjum því við viljum að sem flestir fái eitthvað í sinn hlut.

Páskaeggjaleitin að þessu sinni markar upphaf viðburða sem Sjálfstæðisflokkurinn og frambjóðendur hans efna til í tengslum við kosningabaráttuna fyrir komandi kosningar og munu því frambjóðendur flokksins að mestu sjá um framkvæmd páskaeggjaleitarinnar að þessu sinni.

Páskaeggjaleitin er fyrst og fremst til gamans gerð og er hún frábært tækifæri fyrir fjölskyldur í Eyjum til að hafa saman skemmtilega stund úti í góða veðrinu, sem útlit er fyrir að verði á laugardaginn og ekki skemmir stemmninguna að geta nælt sér í páskaegg í leiðinni.

Við hvetum Eyjabúa alla til að fjölmenna á Skansinn kl. 15: 00 á laugardaginn og taka þátt í þessum skemmtilega viðburði með okkur.

Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins

 

Fréttatilkynning.

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.