Herjólfur stefnir á að sigla eina ferð til Landeyjahafnar síðdegis í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skipafélaginu.
Brottför frá Vestmannaeyjum verður kl. 17:00, en áður hafði verið áætlað að sigla kl. 16:00. Brottför frá Landeyjahöfn verður kl. 20:00, en áður hafði verið áætlað að sigla kl. 19:45.
Varðandi siglingar á morgun verður tilkynning gefin út síðar í kvöld, eða fyrir kl. 06:00 í fyrramálið. Farþegar sem ferðast í dag og eru með bíl í Þorlákshöfn eru beðnir um að láta vita við afgreiðslu Herjólfs í Vestmannaeyjum.
Uppfært kl. 22.00
„Herjólfur siglir til Landeyjahafnar sunnudaginn 5. apríl skv. eftirfarandi áætlun. Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00, 17:00, 19:30. Brottför frá Landeyjahöfn kl. 10:00, 18.15, 20:45.
Þeir farþegar sem eru að ferðast á morgun og eiga farartæki í Þorlákshöfn, þá verður Herjólfur ohf með rútu ferð í Þorlákshöfn til þess að sækja farartæki eftir ferðina kl. 17:00. A.T.H. – Þeir sem ætla sér að nýta það, eru beðnir um að melda sig við skrifstofu Herjólfs í Vestmannaeyjum fyrir kl. 16:00 á morgun.
Herjólfur stefnir á að sigla til Þorlákshafnar á mánudaginn og þar til annað verður tilkynnt. En við viljum góðfúslega benda farþegum okkar sem ætla sér að ferðast þann dag að spáð er gulri viðvörun á Suðurlandi og hvetjum við því farþega til þess að ferðast fyrr en seinna,” segir í nýrri tilkynningu frá Herjólfi ohf.