Víðir Sigurðsson, einn öflugasti íþróttablaðamaður sem við eigum birti á Fésbókarsíðu sinni skemmtilega tölfræði eftir fyrstu umferð Bestu deildar karla, sem lauk á sunnudaginn síðasta. Þar kemur reyndur knattspyrnumaður frá Hornafirði og leikmaður ÍBV, mikið við sögu sem og ungur og efnilegur leikmaður ÍBV. Leikjahæsti erlendi leikmaðurinn í deildinni er einnig nefndur ásamt ásamt fjölmörgum fleirum.
Alex Freyr Hilmarsson, fyrirliði ÍBV hóf keppnistímabilið 2026 á því að ná stórum áfanga þegar Eyjamenn gerðu jafntefli við FH-inga, 1-1, í Bestu deild karla á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum í dag. Alex lék þar sinn 300. deildarleik á meistaraflokksferlinum en þessi 32 ára gamli miðjumaður frá Hornafirði hóf þar sitt átjánda tímabil frá því hann lék fyrst með Sindra á Hornafirði, fimmtán ára að aldri. Hann lék 35 leiki með Sindra í 3. deildinni, fór þaðan til Grindavíkur, spilaði fyrst í efstu deild 2012 og síðan þrjú ár í 1. deildinni.
Alex lék með Víkingi 2016-2018, síðan með KR 2019-2021 og varð Íslandsmeistari fyrsta árið, hálft tímabil með Kórdrengjum í 1. deild 2021 en hefur spilað með ÍBV frá 2022 og var því að hefja sitt fimmta tímabil í Eyjum. Alex á nú samtals að baki 178 leiki í efstu deild, 87 í 1. deild og 35 í 3. deild, eða 300 deildaleiki samtals, og hann er reyndasti leikmaður ÍBV í dag.
Leikjahæstu erlendu leikmennirnir
Kennie Chopart, fyrirliði Fram, er leikjahæsti erlendi leikmaður deildarinnar frá upphafi og Daninn reyndi bætti að sjálfsögðu met sitt í kvöld þegar Fram gerði jafntefli við ÍA, 3-3, í lokaleik fyrstu umferðar. Kennie lék þar sinn 264. leik í deildinni, er orðinn 17. leikjahæstur af öllum leikmönnum hennar frá upphafi, og deilir reyndar 17. sætinu með Atla Viðari Björnssyni og Baldri Sigurðssyni.
Næst leikjahæsti erlendi leikmaðurinn frá upphafi er Pablo Punyed, landsliðsmaður El Salvador, með 237 leiki en hann er nú leikmaður Hauka í 2. deild. Kennie hélt upp á þetta með því að tryggja Fram stig þegar hann jafnaði, 3-3, í uppbótartíma leiksins en það var hans 47. mark í deildinni.
Þeir leikjahæstu í Bestu deildinni
Anton Ari Einarsson markvörður Breiðabliks er sá leikmaður í Bestu deildinni í dag sem hefur leikið lengst án þess að missa úr leik. Hann lék sinn 61. leik í röð í marki Blika þegar þeir gerðu jafntefli við Víking, 1-1, á föstudagskvöldið.
Árni Marinó Einarsson markvörður ÍA og Kjartan Kári Halldórsson, vinstri kantmaður FH, koma næstir á eftir Antoni en þeir léku báðir sinn 55. leik í röð í deildinni í dag. Árni hefur gert enn betur því hann lék auk þess heilt tímabil með ÍA í 1. deild og hefur því varið mark Skagamanna í 77 deildarleikjum í röð.
Viktor Jónsson, framherji og fyrirliði ÍA, lék sinn 150. leik í efstu deild í gærkvöld þegar Skagamenn heimsóttu Fram. Hann skoraði sitt 48. mark í deildinni en hefur auk þess skorað 79 mörk í 1. deild.
Leikur ÍBV gegn FH
Viggó Valgeirsson skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild, í sínum fjórða leik, þegar hann kom ÍBV yfir gegn FH, 1-0, á Hásteinsvelli.
Kári Kristjánsson var aðeins 4 mínútur að jafna fyrir FH gegn ÍBV í sínum fyrsta leik í efstu deild, eftir að hafa komið inn á sem varamaður í leiknum í Eyjum. Kári kom til FH frá Þrótti R. fyrir þetta tímabil.
Og áfram heldur Víðir að rekja gang annnarra leikja í Bestu deildinni á Fésbókinni sem er áhugaverð lensing fyrir alla sem áhuga hafa knattspyrnu. Öll tölfræði á hreinu sem gefur umfjölluninni meira gildi.
Úrslit fyrstu umferðar:
Víkingur R. – Breiðablik 1-1
ÍBV – FH 1-1
KA – Stjarnan 2-3
KR – Keflavík 3-2
Valur – Þór 1-2
Fram – ÍA 3-3
Samtals 23 mörk og öll tólf liðin skoruðu. Það hefur ekki gerst áður í fyrstu umferð eftir að liðum var fjölgað úr tíu í tólf árið 2008.