Eyjafréttir kynna hér frambjóðendur fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar í Vestmannaeyjum. Hvert framboð valdi fimm fulltrúa af sínum lista til að svara spurningum um bakgrunn, áherslur og sýn á framtíð samfélagsins
Nafn: Sonja Andrésdóttir
Aldur: 53 ára
Fjölskylda: Ég er gift Agnari Magnússyni og á fjögur börn, þau Andrés, Guðbjörn, Birtu Líf og Andri Már. Einnig á ég einn lítnn ömmusnúð hann Maron Breka og tvo hunda þá Rökkva og Myrkva.
Menntun og störf: Ég fór langt með kokkanámið á sínum tíma og vann í þeim geira í mörg ár en starfa nú sem tómastunda- og virknistjóri á Hraunbúðum auk þess sem ég tek vaktir í Kjarnanum.
Fyrri afskipti af stjórnmálum: Ég hef komið að stjórnmálastarfi í Vestmannaeyjum fyrst með Framsókn og óháðum og eitt kjörtímabil með E- listanum. Ég hef setið í fræðsluráði verið varamaður í fjölskyldu- og tómstundaráði.
Af hverju Miðflokkurinn? Þetta er sá flokkur sem hefur barist hvað harðast fyrir hagsmunum okkar Eyjamanna og þar tel ég að finna gott bakland og tengingu inn á þing.
Brýnustu verkefni: Að huga að framtíðinni þegar kemur að þjónustu við okkar besta fólk, má þar nefna að nauðsynlegt er að finna framtíðar hjúkrunarheimili stað í skipulagi bæjarins. Þrátt fyrir að það sé ekki sveitarfélagsins að byggja það þá vitum við öll að við fáum ekkert nema að biðja um það og að ekkert er byggt ef ekki gert ráð fyrir því og ekkert pláss er til staðar fyrir það.
Hvaða málaflokka munt þú leggja áherslu á: Ég mun leggja sérstaka áherslu á þjónustu við aldraða, fólk með fatlanir og aðstandendur þeirra, með það markmið að tryggja aukin lífsgæði, öryggi og aðgengi að viðeigandi stuðningi.
Hvernig sérðu framtíð Vestmannaeyja: Sem framúrskarandi sveitarfélag sem eftirsóknarvert er að búa í og getur þjónustað við aldraða og þá sem glíma við fatlanir sem best, og stuðlað að því að þeir og umönnunaraðilar þeirra geti lifað og starfað í góðu umhverfi, með viðeigandi aðstöðu, þannig að þeir geti blómstrað sem best.
Hvað hefur þú fram að færa sem fulltrúi Miðflokksins: Ég hef reynslu af störfum fyrir stofnanir bæjarins og innan stjórnsýslu hans. Í starfi mínu á Hraunbúðum og í Kjarnanum hef ég öðlast dýrmæta innsýn í aðstæður þeirra sem reiða sig á þjónustuna. Sú reynsla hefur gert mig meðvitaða um bæði styrkleika kerfisins og hvar tækifæri liggja til úrbóta í þessum mikilvæga málaflokki.
Hvað skiptir þig mestu máli persónulega varðandi Vestmannaeyjar? Ég vil að Eyjarnar séu samfélag þar sem hver og einn skiptir máli og fólk getur treyst hvert á annað. Þegar fólki líður vel í Eyjum hefur það jákvæð áhrif á allt í kring, eins og samfélagið og menninguna. Það er sú sýn sem Miðflokkurinn vill standa fyrir.
Hvaða málaflokka munt þú leggja áherslu á?
Ég mun leggja sérstaka áherslu á þjónustu við aldraða, fólk með fatlanir og aðstandendur þeirra, með það að markmiði að tryggja aukin lífsgæði, öryggi og aðgengi að viðeigandi stuðningi.
Hvernig sérðu framtíð Vestmannaeyja?
Ég sé fyrir mér Vestmannaeyjar sem framúrskarandi og eftirsóknarvert sveitarfélag þar sem gott er að búa. Samfélag sem veitir öldruðum og fólki með fatlanir fyrsta flokks þjónustu og skapar aðstæður sem gera þeim og aðstandendum þeirra kleift að lifa og starfa í öruggu, stuðningsríku, jákvæðu og nærandi umhverfi. Markmiðið er að allir hafi raunhæf tækifæri til að dafna og njóta sín til fulls.