Kvennalið ÍBV í handbolta tapaði gegn Haukum, í fyrsta leik í undanúrslita einvíginu milli þessara liða í Olís deild kvenna, í Eyjum í kvöld. Leiknum lauk með þriggja marka sigri Hauka stelpna og eru þær nú 1-0 yfir í einvíginu.
Mikið jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en Eyjakonur náðu tveggja marka forystu, 4-2, á upphafs mínútunum. Eftir stundarfjórðung var staðan jöfn, 7-7. ÍBV náði aftur tveggja marka forystu, 12-10, fjórum mínútum fyrir hálfleiks flautið. ÍBV leiddi með einu marki í hálfleik, 13-12.
Svipað var upp á teningnum í síðari hálfleik og skiptust liðin á að vera með forystuna. Þegar stundarfjórðungur var eftir var staðan jöfn, 20-20. Haukar reyndust sterkari á loka mínútum leiksins og voru tveimur mörkum yfir, 24-26, þegar rúmar þrjár mínútur voru til leiksloka. Haukar unnu að lokum þriggja marka sigur. Lokatölur leiksins 26-29.
Sandra Erlingsdóttir, leikmaður ÍBV, var atkvæðamest í leiknum með níu mörk. Amalia Frøland varði átta skot í marki ÍBV.
Mörk ÍBV: Sandra Erlingsdóttir 9 mörk, Birna Berg Haraldsdóttir 5, Amelía Dís Einarsdóttir 3, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 3, Ásta Björt Júlíusdóttir 3, Britney Emile Florianne Cots 1, Lilja Kristín Svansdóttir 1, Klara Káradóttir 1, Ásdís Halla Hjarðar 1.
ÍBV sækir Hauka heim á Ásvelli í öðrum leik í einvíginu, laugardaginn 18. apríl kl. 16:00.