Ferðamálasamtök Vestmannaeyja senda frá sér sterkt ákall til stjórnvalda þar sem þau lýsa yfir djúpum áhyggjum af ástandi samgangna til og frá Eyjum. Samtökin segja stöðuna ekki lengur ásættanlega og vara við alvarlegum afleiðingum fyrir atvinnulíf, öryggi og daglegt líf íbúa ef ekki verði gripið til tafarlausra úrbóta. Ákallið – sem er stílað á ráðherra og þingmenn – má lesa í heild sinni hér að neðan.
Hæstvirtir ráðherrar og þingmenn.
Það er löngu orðið óásættanlegt ástand í samgöngum við Vestmannaeyjar. Þetta er okkar þjóðvegur og hann er einfaldlega brotinn…
Við upplifum verulega vanvirðingu í þeim viðbrögðum sem ráðherra málaflokksins hefur sýnt í opinberum viðtölum. Skilja þingmenn og ráðherrar ekki alvarleika málsins?
Á sama tíma eru áhrifin á atvinnulífið í Vestmannaeyjum gríðarleg. Fólk og fyrirtæki óttast um framtíð sína. Afbókanir eru orðnar daglegt brauð, tap er farið að bíta, og sumarið okkar mikilvægasti tími er handan við hornið.
Þetta hefur keðjuverkandi áhrif á allt samfélagið: veitingastaði, afþreyingu, verslun, gistingu og fjölmarga aðra þjónustu. Og ekki síður á daglegt líf bæjarbúa, sem er orðið óviðunandi að búa við þessar aðstæður.
Ferðaþjónustufyrirtæki í Vestmannaeyjum njóta ekki þess lúxus að hafa 12 mánaða rekstrarár. Rekstrargluggi þeirra er aðeins 4–5 mánuðir. Nú er verið að skerða þennan stutta glugga, sem er með öllu óásættanlegt.
Herjólfur er ekki aðeins samgöngutæki, heldur lykilhluti almannavarna, sem undirstrikar mikilvægi þess að samgöngur virki áreiðanlega.
Við erum jafnframt eitt af verðmætustu sveitarfélögum landsins miðað við framlag á hvern íbúa til ríkissjóðs. Lágmarkskrafa okkar er einföld: að þjóðvegurinn okkar virki.
Þegar svo er ekki, hvað er þá annað í stöðunni en að hækka róminn og senda frá sér þetta ákall?
Stjórn Ferðamálasamtaka Vestmannaeyja
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.