Ungt fólk er framtíð hvers samfélags. Það erum við, unga fólkið í dag, sem munum smám saman taka við þeim verkefnum sem sinna þarf, hvort sem er í frístundastarfi, atvinnulífi eða stjórnun bæjarfélagsins. Framtíðin mótast af því hvað við gerum og hvað við ákveðum, í dag, næstu vikur, mánuði og ár. Við þurfum því að spyrja okkur sjálf hvernig við viljum að samfélag okkar mótist og hvernig við getum haft áhrif á þá mótun.
Við höfum lítil áhrif ef við sitjum hjá og tökum ekki þátt en getum líka haft mikil áhrif með því að vera þátttakendur í stjórnmálum. Ég vil hafa áhrif á það hvernig samfélagið hér í Eyjum þróast á næstu árum og þess vegna ákvað ég að gefa kost á mér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor. Ég er mjög ánægð með þann árangur sem ég náði og það traust sem mér var sýnt með því að velja mig í 9. sæti listans, sem þýðir að ef við sjálfstæðismenn náum markmiði okkar, hreinum meirihluta í bæjarstjórn, verð ég varabæjarfulltrúi á næsta kjörtímabili. Ef svo verður fæ ég tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á ákvarðanir um mál sem skipta okkur öll máli, bæði núna og til framtíðar.
Vestmannaeyjar eru frábær staður að búa á og við þurfum að vinna að því áfram að hér sé gott fyrir ungt fólk að búa og hér sé tryggð sem best þjónusta við fjölskyldufólk en á sama tíma þarf atvinnulífið að þróast og vaxa því allt er auðvitað undir því komið að atvinna sé næg. Hér þarf áfram nýsköpun og kröftugt atvinnulíf til að tækifæri skapist fyrir fólk að fá atvinnu við sitt hæfi að loknu námi. Atvinnutækifærum hefur fjölgað hér síðustu ár og uppbygging fyrirtækis eins og Laxeyjar skapar ný atvinnutækifæri fyrir menntað fólk hér í Eyjum.
Hér þarf líka að tryggja góða grunnþjónustu, öfluga leik- og grunnskóla, heilbrigðisþjónustan þarf að fullnægja kröfum nútímans og samgöngur verða að komast í betra horf.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur sýnt það í verki að hann gefur ungu fólki tækifæri og raddir þess fá að heyrast og hafa áhrif. Ég hef nú tækifæri á að láta rödd mína heyrast á vettvangi bæjarmála og ungir kjósendur geta styrkt rödd mína á því sviði með því að gefa Sjálfstæðisflokknum atkvæði sitt í bæjarstjórnarkosningunum 16. maí nk.
Nýtum kosningaréttinn, setjum X við D, og höfum þannig áhrif á hvernig framtíðin verður mótuð hér í Eyjum.
Guðbjörg Sól Sindradóttir
Höfundur er í 9. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins.