Dýpkun mistókst í morgun – reynt aftur í kvöld
Ölduhæð og brot í hafnarmynni settu strik í reikninginn
alfsnes_vegagerdin_24_is
Álfsnesið í Landeyjahöfn. Ljósmynd/Vegagerðin

Ekki tókst að hefja dýpkun í Landeyjahöfn á flóðinu í morgun þar sem aðstæður reyndust óhagstæðar. Þetta kemur fram í upplýsingum frá G. Pétri Matthíassyni, forstöðumanni samskiptadeildar Vegagerðarinnar.

„Það gekk ekki að dýpka á flóðinu í morgun, ölduhæð og öldulengd hömluðu því og eins brot í hafnarmynninu,“ segir Pétur. Gert er ráð fyrir að ný tilraun verði gerð síðar í dag ef aðstæður leyfa. „Það verður reynt aftur í kvöld,“ segir Pétur.

Þá má geta þess að vinna um borð í Herjólfi gekk vonum framar og er hann kominn aftur í áætlun milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar.

Nýjustu fréttir

Tómas Bent og félagar í Hearts tryggðu sér sæti í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu
Myndband: Athafnasvæðin austur á Heimaey úr lofti
Jóhann Ingi tekur sæti Sæunnar til áramóta
Vaxandi lestur og fleiri áskrifendur hjá Eyjafréttum
Tölum um heilabilun – fræðsla í Vestmannaeyjum
Starfshópur mótar nýja ferjuáætlun
Haustið farið af stað hjá Fimleikafélaginu Rán
Ægisgata 2 sett aftur á sölu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.