Halla Hrund óskar eftir opnum fundi um stöðu samgangna til Vestmannaeyja
Halla Hrund Logadóttir þingmaður Framsóknar.

Aðsend grein

Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, óskaði á fundi umhverfis- og

samgöngunefndar í morgun eftir opnum fundi nefndarinnar með Eyjólfi Ármannssyni

innviðaráðherra um stöðu samgangna til Vestmannaeyja sem og nauðsyn heildstæðrar

ferjuáætlunar fyrir landið allt.

 

Tillagan þingmannsins var samþykkt einróma.

Tilefni fundarbeiðninnar er að samgöngur til og frá Vestmannaeyjum hafa raskast verulega

vegna bilunar í Herjólfi og krefjandi stöðu Landeyjahafnar. Núverandi staða annar ekki

samgönguþörf til og frá eyjum. Baldur, Breiðafjarðarferjan, hefur verið kallaður til sem varaskip,

sem sýnir að vandinn nær út fyrir Vestmannaeyjar og varðar ferjusamgöngur á landsvísu. Þetta

ástand er ósjálfbært og skapar gríðarlega óvissu fyrir samfélagið í Vestmannaeyjum í heild.

 

Á fundinum með ráðherra mun Halla Hrund óska eftir því að ráðherra geri grein fyrir aðgerðum

næstu vikna og mánaða vegna Landeyjahafnar, viðhalds Herjólfs og varaskipakosts. Þá vill hún

að rætt verði hvort tímabært sé að móta heildstæða ferjuáætlun fyrir Ísland þar sem kaup,

endurnýjun, viðhald og varaskip ferja verði tímasett og fjármögnuð sem hluti af

samgönguáætlun.

 

Vestmannaeyjar eru einstakt samfélag í þjóðhagslegu tilliti og ferjuleiðin þangað gegnir í reynd

hlutverki þjóðvegar fyrir íbúa og atvinnulíf. Því telur Halla Hrund mikilvægt að skoðað verði hvort

leiðin eigi að njóta sambærilegs forgangs og hluti af grunnkerfi samgangna, til dæmis með

skilgreiningu sem þjóðferjuleið.

 

Mikilvægt sé að móta heildarsýn sem felur í sér örugga höfn, öflugan Herjólf, raunhæfan

varaskipakost og langtímaáætlun um ferjusamgöngur um allt land. Samgöngur til

Vestmannaeyja eru ekki sérmál Vestmannaeyja einna. Málið varðar búsetuöryggi, atvinnulíf,

ferðaþjónustu, almannavarnir og jafnræði byggða.

 

Í ofangreindu ljósi óskaði Halla Hrund eftir því að ráðherra svari meðal annars eftirfarandi

spurningum:

 

  • Hvaða aðgerða hyggst ráðherra grípa til á næstu vikum og mánuðum til að bæta

áreiðanleika samgangna til og frá Vestmannaeyjum?

  • Hvaða ráðstafanir eru fyrirhugaðar vegna Landeyjahafnar, þar á meðal varðandi

dýpkun, viðhald og rekstraröryggi hafnarinnar?

  • Hvernig hyggst ráðherra tryggja viðhald Herjólfs og fullnægjandi varaskipakost þegar

bilanir, viðhald eða veður valda röskun á áætlunarsiglingum?

  • Hvaða langtímaaðgerðir eru fyrirhugaðar á þessu kjörtímabili til að tryggja öruggar og

fyrirsjáanlegar samgöngur við Vestmannaeyjar?

  • Hefur ráðherra samhliða í hyggju að leggja til að stjórnvöld taki þátt í fjármögnun

rannsókna félagsins Eyjaganga sem stendur að rannsóknum um fýsileika gerð

jarðgangna til Vestmannaeyja?

  • Kemur til greina að skilgreina samgöngur til Vestmannaeyja sem þjóðveg, með

hliðsjón af stærð samfélagsins og þjóðhagslegu mikilvægi atvinnulífs þar?

  • Verður sett á heildstæð ferjuáætlun fyrir landið allt komið á þar sem fjárfestingar í

ferjum verða tímasettar og fjármagnaðar sem hluti af samgönguáætlun?

Nýjustu fréttir

Halla Hrund óskar eftir opnum fundi um stöðu samgangna til Vestmannaeyja
15 ára stelpa úr Eyjum misst 12 daga úr skóla
Aðstæður versnuðu í gær – gluggi í dag
Innviðaráðherra svarar bæjarráði
Spurt og svarað: Jón Þór frá Miðflokknum
Hafnað um stækkun ramps
Fyrirliði ÍBV spennt fyrir komandi tímabili í Bestu deildinni
Þungt tap ÍBV gegn KR
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.