Frábær árangur FÍV – Eyjakonfekt til Tromsø
Þátttakendurnir úr Eyjum gerðu sér glaðan dag að keppni lokinni. Ljósmynd/aðsend.

Nemendur við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum náðu frábærum árangri í úrslitum Fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla 2026 þegar fyrirtækið Eyjakonfekt hlaut 3. sæti.

Verðlaunin eru ekki af verri endanum en með sætinu fylgir ferð til Tromsø þar sem nemendur taka þátt í Arctic Youth Championship dagana 18.–21. maí. Þar fá þeir tækifæri til að kynna verkefni sitt og spreyta sig á alþjóðlegum vettvangi ásamt ungum frumkvöðlum frá Norðurlöndunum.

Hörð samkeppni

Alls tóku um 150 fyrirtæki þátt í keppninni, stofnuð af um 620 nemendum víðs vegar að af landinu. Af þeim komust 40 fyrirtæki frá 17 framhaldsskólum í úrslit, sem undirstrikar hversu sterkur árangur Eyjakonfekts er. Á facebook-síðu Eyjakonfekts segir að að fyrirtækinu standi þær: Alexandra Ósk, Anna Margrét, Ásta Hrönn, Eva Magnúsdóttir ogSara Margrét.

Fram kemur á samfélagsmiðlum FÍV að það sé sérstaklega ánægjulegt að sjá þennan árangur í ljósi þess að nýsköpunaráfangi er einn af skylduáföngum til stúdentsprófs við FÍV.

„Í áfanganum stofna nemendur fyrirtæki, þróa hugmyndir, vinna saman, kynna lausnir og prófa sig áfram í raunverulegum verkefnum. Svona árangur sýnir hversu mikilvægt er að gefa ungu fólki rými til að skapa, framkvæma og trúa á eigin hugmyndir. Við erum ótrúlega stolt af þessum unga frumkvöðlakrafti úr Eyjum. Þetta er metnaður, sköpunargleði og hugrekki í verki. Innilega til hamingju öll!”

Fyrirtæki ársins

Fyrirtækið Þekktu landið! frá Verslunarskólanum í Reykjavík var valið fyrirtæki ársins 2026. Það framleiðir fræðandi og skemmtilegt borðspil sem gengur út á að þekkja staðsetningu þekktra staða á Íslandi og sameinar þannig leik og lærdóm. Í öðru sæti varð fyrirtækið Grásíða, einnig frá Verslunarskólanum.

Uppskeruhátíð keppninnar fór fram í höfuðstöðvum Arion banka þriðjudaginn 28. apríl þar sem verðlaun voru veitt í fjölmörgum flokkum.

Mikilvægur áfangi fyrir FÍV

Eyjakonfekt býr til og framleiðir konfektmola innblásna frá Vestmannaeyjum og má meðal annars finna mola af Heimakletti, lunda, ÍBV og ýmsu öðru tengt Vestmannaeyjum.

Árangur Eyjakonfekts er stór áfangi fyrir Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum og sýnir að nemendur við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum standa jafnfætis þeim bestu á landsvísu þegar kemur að frumkvöðlastarfi og nýsköpun.

Fram kemur á heimasíðu keppninnar að Þór Sigfússon forstjóri Sjávarklasans og Guðfinna Helgadóttir rekstrarstjóri á viðskiptasviði Arion banka hafi veitt verðlaun í eftirfarandi flokkum:

Aðalverðlaun: Fyrirtæki ársins, keppir fyrir Íslands hönd í stærstu nýsköpunarkeppni í Evrópu GEN_E 2026 7. – 10. júlí.
Þekktu landið! Verslunarskóli Íslands

2..Fyrirtæki ársins 2. sæti, fær ferð á Arctic Youth Championship í TromsØ 18. – 21. maí (samstarfsverkefni með JA Norway, JA Finland og JA Sweden, en 30 þátttakendur fara héðan)

Grásíða, Verslunarskóla Íslands

3. Fyrirtæki ársins 3. sæti, fær ferð á Arctic Youth Championship í TromsØ 18.- 21. maí

Eyjakonfekt, Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum

4. Frumlegasti sölubásinn, Hlýja Fjölbrautaskólinn í Garðabæ

5. Öflugasta sölustarfið – Smáralind, Blær, Menntaskólinn við Sund

6. Áhugaverðasta nýsköpunin – Norður Rækja, Verkmenntaskólinn á Akureyri

7. Samfélagsleg nýsköpun, Hugljómi, Verslunarskóli Íslands

8. Áhugaverðasta fjármálalausnin, Framtak, Tækniskólinn

9. Matvælafyrirtæki ársins, Krílabiti, Fjölbrautaskólinn í Garðabæ

10. Besta hönnunin, Sjávardjásn, Menntaskólinn við Sund

11. Áhugaverðasta tækninýjungin, Brauðbox, Tækniskólinn

12.. Umhverfisvænasta lausnin, Land, Verslunarskóli Íslands

Jennifer Bushman, framkvæmdastjóri Fed by Blu og Þór Sigfússon forstjóri Sjávarklasans veittu verðlaun fyrir besta sjó-bissnessinn:

13.Besti sjó-bissnessinn, HafBit, Fjölbrautaskólinn í Garðabæ

Nýjustu fréttir

Frábær árangur FÍV – Eyjakonfekt til Tromsø
Íþróttamaður mánaðarins – Helgi Ólafsson
Baldur á leið til Eyja
Ekki brotna! Fræðsla og forvarnir um beinheilsu
Margrét aðstoðar Miðflokkinn
Herrakvöld fótboltans
Fundur bæjarstjórnar í beinni
Samgöngur og sannindi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.