Meiri sandur í höfninni – dýpkun hefst í fyrramálið
Alfsnes 06 24 IMG 5443 2
Álfsnesið við dýpkun við Landeyjahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Ný dýptarmæling í Landeyjahöfn, sem lauk rétt í þessu, sýnir að töluverður sandur hefur safnast upp frá síðustu mælingu. Þetta kemur fram í upplýsingum frá G. Pétri Matthíassyni, forstöðumanni samskiptadeildar Vegagerðarinnar.

„Það hefur safnast ansi mikið frá síðustu mælingu,“ segir Pétur. Þrátt fyrir það er stefnt að því að hefja dýpkun á ný á morgun. „Álfsnesið byrjar að dýpka í fyrramálið á morgunflóðinu,“ segir hann.

Horfur næstu daga eru taldar hagstæðar fyrir dýpkun. „Spáin er góð næstu daga,“ segir Pétur.

Baldur og Herjólfur sigla til Þorlákshafnar fram á sunnudag

Á meðan er ljóst að ekki er nægilegt dýpi til siglinga um Landeyjahöfn. Í tilkynningu frá Herjólfi kemur fram að ferjan muni ásamt Baldri sigla samkvæmt breyttri áætlun til og frá Þorlákshöfn næstu daga.

Á föstudag siglir Herjólfur frá Vestmannaeyjum kl. 07:00 og 16:00 og frá Þorlákshöfn kl. 11:15 og 20:00. Baldur siglir frá Vestmannaeyjum kl. 07:30 og 16:30 og frá Þorlákshöfn kl. 11:00 og 19:45.

Á laugardag verða brottfarir Herjólfs frá Vestmannaeyjum kl. 07:00 og 16:00 og frá Þorlákshöfn kl. 11:00 og 20:15. Baldur siglir frá Þorlákshöfn kl. 08:45 og 19:45 og frá Vestmannaeyjum kl. 16:30.

Á sunnudag siglir Herjólfur frá Vestmannaeyjum kl. 07:00 og 16:00 og frá Þorlákshöfn kl. 11:00 og 20:00. Baldur siglir frá Vestmannaeyjum kl. 08:30 og 15:00 og frá Þorlákshöfn kl. 11:45 og 18:30.

Fram kemur að allar ferðir sem áður voru áætlaðar um Landeyjahöfn falla niður á meðan staðan er óbreytt og að ferðir Baldurs hafi verið settar inn til að mæta þörfinni.

Staðan í Landeyjahöfn heldur áfram að hafa veruleg áhrif á samgöngur milli lands og Vestmannaeyja, en vonir standa til að dýpkun næstu daga skili árangri.

Nýjustu fréttir

Áfall fyrir ÍBV – Amalia Frøland með slitið krossband
Meiri sandur í höfninni – dýpkun hefst í fyrramálið
Maí sól – Lag til ömmustelpurnar
Styrkir veittir til fjölbreyttra verkefna
Neyðarkall úr Eyjum
Sigmundur Davíð með opinn fund
Hæsti styrkurinn til Eyja
Dýptarmæling í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.