The Puffin Run hlaupið í níunda sinn á morgun
Ljósmynd/Friðrik Björgvinsson

The Puffin Run verður haldið í níunda sinn á morgun. Skráðir keppendur eru 697 (plús boðhlaup) en upphaflega var búist við metþátttöku eða 1800 manns en vegna lokunar Landeyjarhafnar voru margir sem gátu ekki séð sér fært um að taka þátt. 

Meðal keppenda eru margir af bestu hlaupurum landsins. Rásmark er á Nausthamarsbryggju og verða keppendur ræstir út í 80 hlaupara hópum á mínútu fresti. Fyrsti hópur fer af stað klukkan 12:15.

Fyrir þá sem vilja fylgjast með og er þá best að vera sunnan við Vigtartorg. Hlaupið er rangsælis umhverfis Heimaey og verður áhugavert að sjá keppendur t.d. á Hamrinum og austan við Helgafell. Þau fljótustu eru að koma í mark um kl.13:30 og er þá gott að fylgjast með á nýju trépöllunum við Nausthamarsbryggju. Undirbúningsvinna hefur verið á fullu og eru 200 starfsmenn að starfa við hlaupið á keppnisdegi, en það hefur fengið mikið lof undanfarin ár fyrir góða brautarvörslu.

Nýjustu fréttir

Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.