Úrslitaeinvígið: Mæta Val á heimavelli
Ásdís Halla Hjarðar sækir að marki Vals. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Kvennalið ÍBV tekur á móti Val í öðrum leik liðanna í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í dag, þriðjudag.

Leikurinn fer fram í Íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum og hefst klukkan 18:00. Staðan í einvíginu er 1–0 fyrir Val, eftir sigur þeirra í fyrsta leik, og því ljóst að mikið er undir hjá Eyjakonum sem stefna á að jafna metin.

Handknattleiksdeild ÍBV hvetur stuðningsmenn til að fjölmenna og styðja liðið í þessum mikilvæga leik. Upphitun hefst klukkan 17:00 og verður hægt að kaupa veitingar á staðnum, meðal annars hamborgara og drykki.

Mikilvægi leiksins er undirstrikað í tilkynningu frá deildinni og eru stuðningsmenn hvattir til að mæta og skapa öfluga stemningu í húsinu. „Þessi leikur skiptir gríðarlega miklu máli og nú þurfum við alla til að mæta,“ segir í tilkynningunni. Stuðningsmenn eru hvattir til að mæta og hvetja liðið áfram til sigurs.

Nýjustu fréttir

Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Gabríela Máney
Blessuð sé minning starfshópsins
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Bjarki Þór
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Haraldur Dúi
Fimmti flokkur drengja ÍBV tók þátt í N1 mótinu á Akureyri
Skipaumferð setti svip á höfnina í dag
Eyjasundinu flýtt vegna veðurs
Þrjú álitaefni réðu úrslitum í vatnslagnarmálinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.