Landeyjahöfn orðin fær á háflóði
landeyjah_her_nyr
Herjólfur siglir inn Landeyjahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: Tryggvi Már

Í gærkvöldi var framkvæmd dýptarmæling í Landeyjahöfn og eins og sjá má á myndinni hér fyrir neðan vantar enn töluvert upp á að hægt sé að sigla til Landeyjahafnar nema við kjöraðstæður á háflóði. Þetta segir í tilkynningu frá Herjólfi ohf.

Þar segir jafnframt að Herjólfur stefni á að sigla til Landeyjahafnar seinnipartinn í dag skv. eftirfarandi áætlun:

Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 18:00 (Áður ferð kl. 16:00/17:00).
Brottför frá Landeyjahöfn kl. 20:15 (Áður ferð kl. 20:00/20:45).

Miðvikudagur 6. maí
Herjólfur stefnir á að sigla til Landeyjahafnar skv. eftirfarandi áætlun.

Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00 og 18:00.
Brottför frá Landeyjahöfn kl. 09:00 (Áður ferð kl. 10:45) – ATH áætlun Strætó passar ekki við siglingatíma Herjólfs og kl. 20.15.

Enn er unnið að dýpkun og mun almenningur verð upplýstur um framvindu næstu daga, eins fljótt og auðið er, segir að endingu í tilkynningunni.

Nýjustu fréttir

Kostnaður við NSL-4 stefnir í 3,1 milljarð – umfang tjónsins enn óljóst
Metþátttöku í Sumarlestri fagnað með lokahófi
Snýr aftur til Eyja með penslana í farteskinu
Landað í lok kvótaárs
100 ára afmælisblað Taflfélagsins – prentútgáfa og vefblað
Anika Hera tekur næsta skref í þjálfun
Farþegum með Herjólfi fækkar um rúm 14 prósent
Tómas Bent og félagar í Hearts tryggðu sér sæti í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.