Ekki bíða, taktu þátt núna
Guðný Rún Gísladóttir skipar 16. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins.

Aðsend grein

Guðný Rún Gísladóttir

Það er oft sagt að ungt fólk sé framtíðin. En með því að segja það erum við stundum ómeðvitað að segja að þau fái hlutverk, bara ekki alveg strax. Það er eins og að segja að það sé hlutverk ungs fólks að bíða eftir að hafa klárað nám, öðlast reynslu og ná tilteknum aldri áður en það getur haft raunveruleg áhrif. Ég er þeirrar skoðunar að samfélag sem biður unga fólkið sitt að bíða sé samfélag sem missir af tækifærum. Ungt fólk hefur hagsmuni sem það þarf að gæta að og þess vegna á það ekki að bíða, heldur taka þátt núna.

Eyjan okkar, styrkur og áskorun.

Að alast upp á eyju skapar sterka samfélagskennd og tengsl. Raunveruleikinn er þó sá að fjölmargir sjá sig knúna til að flytja frá Eyjum einfaldlega vegna þess að eftir framhaldsskólanám er námsframboð frekar takmarkað. Líkurnar á því að þeir sem sækja sér menntun flytji aftur heim eru okkur ekki í hag, ekki vegna skorts á vilja heldur vegna þess að tækifærin eru ekki endilega til staðar.

Fjarnám sem brú 

Hér liggur stórt tækifæri sem ég tel nauðsynlegt að unnið sé að á komandi kjörtímabili. Með markvissri eflingu fjarnáms, sérstaklega á háskólastigi, getum við haldið ungu fólki tengdu samfélaginu á meðan það stundar nám. Fjarnám á ekki að vera varalausn heldur möguleiki númer eitt fyrir Eyjar. Það gerir fólki kleift að læra, vinna og taka þátt í okkar samfélagi á sama tíma. Það gefur ungu fólki einnig aukið val þegar það hugsar til framtíðar og opnar á möguleikann á að það staldri lengur við og taki þátt í mótun samfélagsins. Það opnar líka á að það nýti nám sitt til að skapa tækifæri fyrir aðra í samfélaginu okkar og þannig efli samfélagið. Kalla þarf eftir auknu samstarfi við menntastofnanir um að auka framboð á fjarnámi, ekki síst til að mæta þörfum atvinnulífsins hér sem fer ört vaxandi.

FÍV hefur sýnt að þetta er hægt

Framhaldsskólinn okkar hefur svarað þeim hluta af þessu kalli sem hann getur og gert það vel. Hinar ýmsu iðngreinar í bland við öflugan grunn fyrir frekara bóknám eru þar í boði. Þar hefur skólinn gengið fram með góðu fordæmi við góðar undirtektir og tel ég að efling enn frekara fjarnáms sé rökrétt framhald af því. Viska og Þekkingarsetrið hafa einnig upp á að bjóða myndarlega aðstöðu til fjarnáms sem er vert að nýta enn betur.

Taktu þátt með okkur

Við viljum að unga fólkið taki þátt með okkur. Við viljum því opna dyrnar að raunverulegri þátttöku og að raddir þess heyrist. Ungt fólk á ekki að bíða. Vertu með núna strax.

Guðný Rún Gísladóttir

Varaformaður Eyverja

Höfundur skipar 16. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins

Nýjustu fréttir

Ekki bíða, taktu þátt núna
Opinn fundur um Landeyjahöfn
Fjölskyldustemning á Hásteinsvelli þegar topplið ÍBV fær Þór/KA í heimsókn
ÍBV sækir KA heim
ÍBV stelpurnar tryggðu sér annan leik með frábærum sigri
Að vera öryrki
Díana Dögg og Andrea munu leika til úrslita um þýska meistaratitilinn
Könnunarveiðar á humri fara vel af stað
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.